fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Tveir handteknir eftir að „varakóngurinn“ fannst látinn á heimili sínu eftir enn eina fegrunarmeðferðina

Fókus
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn Jordan James Parker, betur þekktur sem varakóngurinn (e. Lip King), er látinn 34 ára að aldri. Hann fannst meðvitundarlaus á heimili sínu í London miðvikudaginn 18. febrúar og var í framhaldinu úrskurðaður látinn. Parke gerði garðinn frægan í raunveruleikaþáttunum Botched þar sem lýtalæknar freista þess að hjálpa fólki sem hefur gengist undir misheppnaðar fegrunaraðgerðir.

Parke lýsti því í viðtali fyrir áratug að hann væri ekki ósáttur við útlit sitt. Fegrunaraðgerðir væru áhugamál hans. Hann byrjaði að sækja sér fegrunarmeðferðir eftir að hann varð 19 ára gamall og er talið að hann hafi varið hátt í 20 milljónum í ýmsar aðgerðir og fylliefni í gegnum árin. Einkum einbeitti hann sér að því að lagfæra nef sitt, stækka varir sínar og stækka á sér höku og kjálkalínu.

Lögreglan rannsakar nú hvort andlátið tengist fegrunaraðgerðum og á föstudaginn voru tveir handteknir grunaðir um að bera ábyrgð á andlátinu. Annars vegar var um 43 ára gamlan karlmann að ræða og hins vegar 52 ára gamla konu.

Parke hafði sjálfur lent í vandræðum vegna fegrunarmeðferða. Hann hélt úti stofu sem bauð meðal annars upp á rassastækkun með fylliefni. Alice Webb var 33 ára gömul fimm barna móðir og hún lést árið 2024 eftir að hafa gengist undir slíka stækkun hjá Parke. Áhrifavaldurinn var handtekinn vegna málsins en hafði þó ekki verið ákærður.

Fjölskylda Alice Webb segist áfram ætla að berjast fyrir réttlæti í máli hennar, jafnvel þó að Parke sé látinn.

People greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“