fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Íslandsvinir aflýsa tónleikum í Indlandi vegna hótana kristilegra öfgamanna

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 13:30

Behemoth léku á Eistnaflugi árið 2015 og söngvari sveitarinnar leikur með Misþyrmingu á Sátunni í sumar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þungarokkshljómveitin Behemoth hefur aflýst tónleikum sínum í indversku borginni Bangalore þann 3. mars næstkomandi. Ástæðan eru líflátshótanir frá kristilegum öfgamönnum í landinu, bæði gagnvart hljómsveitinni og tónleikahöldurunum.

Hljómsveitin Behemoth, sem var stofnuð í Gdansk í Póllandi árið 1991, er Íslendingum að góðu kunnug. Árið 2015 kom hún fram á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi á Neskaupstað. Þá mun söngvari sveitarinnar, Nergal, flytja fyrstu plötu sveitarinnar í slagtogi við íslensku hljómsveitina Misþyrmingu á hátíðinni Sátunni á Stykkishólmi núna í sumar. Má því segja að um eiginlega Íslandsvini sé að ræða.

En vingjarnlegheitin eru minni í Indlandi. Í gær greindi hljómsveitin frá því að tónleikum í Bangalore hafi verið aflýst. Ástæðan er sú að það er ekki talið öruggt vegna hótana kristilegra öfgamanna.

„Undanfarnar vikur höfum við og okkar teymi fengið margar trúverðugar hótanir frá kristilegum hópum sem hafa einnig sett þrýsting á yfirvöld og tónleikahaldara til að stöðva tónleikana. Þessar hótanir hafa valdið töluverðum áhyggjum um öryggi hljómsveitarinnar, möguleikann á handtökum eða líkamlegu ofbeldi,“ segir í yfirlýsingu hljómsveitarinnar.

Ítrekar hljómsveitin að þessi afboðun sé alls ekki tónleikahaldaranum að kenna. Hann hafi staðið við sitt á allan hátt. Það hafi hins vegar ekki verið hægt að veita hljómsveitinni nægilega tryggingu fyrir öryggi sínu.

„Þetta er annað dæmi um trúarofstæki sem reynir að þröngva sér upp á listræna tjáningu, eitthvað sem hljómsveitin hefur nýlega staðið frammi fyrir í Tyrklandi. Það er mikið áhyggjuefni að sjá það sem virðist vera vaxandi hreyfing í átt að ritskoðun um allan heim. Í þessum nútíma heimi ættu listamenn ekki að standa frammi fyrir hótunum, ógnum eða hættu á fangelsun fyrir að flytja list sína,“ segir í yfirlýsingunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“