fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Edrúvikan hefst 5. febrúar – „Drekkum minna – gefum meira“

Fókus
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 13:02

Meðferðarheimilið Krýsuvík. Mynd/DV: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar 2026. Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu „Drekkum minna – gefum meira“.

Í fréttatilkynningu frá samtökunum kemur fram að 120 einstaklingar séu á biðlista eftir bráðri og lífsnauðsynlegri meðferð á Krýsuvík, flest þeirra unga fólk í miklum vanda.

„ Markmið samtakanna er að stytta þessa biðlista á næstu árum, sem krefst aukins fjármagns og víðtækari þjónustu. Með fyrirhugaðri opnun áfangaheimilis verða Krýsuvíkursamtökin í stakk búin til að taka á móti 41 einstaklingi samtímis í stað 29, sem mun stytta biðlistana verulega.“

Árið 2026 markar 40 ára afmælisár Krýsuvíkur. Í áðurnefndri tilkynningu segir að undanfarið árið hafi verið unnið markvisst að eflingu starfsins með betur menntuðum ráðgjöfum og samstarfi við fremstu meðferðarstöðvar í Bandaríkjunum. Árangurinn sé skýr: um 70% þeirra sem ljúka sex mánaða meðferð eru edrú tveimur árum síðar og snúa aftur út í samfélagið, jafnt í nám eða störf.

Í Edrú vikunni eru landsmenn hvattir til að sleppa áfengi og gefa í staðinn andvirðið til Krýsuvíkur. Þátttaka er einföld og boðið verður upp á tvo möguleika: hringja í 902-7107 þar sem dregið er af símareikningi kr. 4500 sem nemur andvirði 12 bjóra eða greiða í gegnum www.edruvika.is þar er boðið upp á þrjár leiðir: andvirði rauðvíns/hvítvíns kr. 3.500, andvirði 12 bjóra kr. 4.500 og andvirði sterkrar áfengisflösku kr. 7.500.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“