fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Sambandssaga stórleikarans – Þekktur fyrir að sparka þeim þegar þær verða 25 ára

Fókus
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 21:30

Leonardo DiCaprio

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sambandsmál bandaríska leikarans Leonardo DiCaprio hafa löngum vakið athygli, maðurinn er enda huggulegur, þekktur og á besta aldri. Það eru þó ekki þessir eiginleikar eða aðrir sem vekja athygli heldur sú staðreynd að Leo virðist alltaf sækja í mun yngri konur. Einnig hafa gárungarnir gert grín að því að svo virðist sem Leo slaufi sambandinu þegar konan nær 25 ára aldri.

The Index Insider birti í dag samantekt um þær konur sem Leo hefur verið í samböndum með síðustu 27 ár og aldur þeirra viðkomandi ár. Leo er fæddur 11. nóvember 1974 og því 51 árs í dag.

Svona er sambandssagan:

1999 – Gisele Bündchen 18 ára
2000 – Gisele Bündchen 19 ára
2001 – Gisele Bündchen 20 ára
2002 – Gisele Bündchen 21 ára
2003 – Gisele Bündchen 22 ára
2004 – Gisele Bündchen 23 ára
– (6 ára aldursmunur, Bündchen er fædd 20. júlí 1980)

2005 – Bar Rafaeli 20 ára

2006 – Bar Rafaeli 21 ára
2007 – Bar Rafaeli 22 ára
2008 – Bar Rafaeli 23 ára
2009 – Bar Rafaeli 24 ára
2010 – Bar Rafaeli 25 ára
-(11 ára aldursmunur, Rafaeli er fædd 4. júní 1985)

2011 – Blake Lively 23 ára

-(13 ára aldursmunur, Lively er fædd 25. ágúst 1987)

2012 – Erin Heatherton 22 ára
-(15 ára aldursmunur, Heatherton er fædd 4. mars 1989)

2013 – Toni Garrn 20 ára
2014 – Toni Garrn 21 árs
-(18 ára aldursmunur, Garrn er fædd 7. júlí 1992)

2015 – Kelly Rohrbach 25 ára
-(16 ára aldursmunur, Rohrbach er fædd 21. janúar 1990)

2016 – Nina Agdal 24 ára
2017 – Nina Agdal 25 ára
-(18 ára aldursmunur, Agdal er fædd 26. mars 1992)

2018 – Camila Morrone 21 árs
2019 – Camila Morrone 22 ára
2020 – Camila Morrone 23 ára
2021 – Camila Morrone 24 ára
2022 – Camila Morrone 25 ára
-(23 ára aldursmunur, Morrone er fædd 16. júní 1997)

2023 – Vittoria Ceretti 25 ára
2024 – Vittoria Ceretti 26 ára
2025 – Vittoria Ceretti 27 ára
-(24 ára aldursmunur, Cerreti er fædd 4. júní 1998)

Einhverjar vantar á listann eins og til dæmis fyrirsætuna Gigi Hadid,en þau áttu í sambandi frá september 2022 til febrúar 2023. Hadid er fædd 23. apríl 1995 og er 21 ári yngri en Leo.

Leo hefur eins og áður var nefnt það orð á sér að segja kærustum sínum upp þegar þær ná 25 ára aldri. Einn gárunganna minnir á það í athugasemd þegar hann skrifar: „Vittoria hlýtur að hafa vaknað hvern dag síðan hún varð 26 ára og hugsað: „Í dag er dagurinn.““ Hún er 27 ára og því elsta konan sem Leo hefur verið í sambandi með.

Og netverjar hafa sannarlega skoðun:

„Þetta er svo skrýtið að ég skil þetta ekki, hann er 51 árs gamall, í alvöru. Þetta er eins og að vera á stefnumóti með einhverjum sem er nógu ungur til að vera dóttir manns. Farðu nú að þroskast.“

„Ef það væri löglegt, myndi hann vera í samböndum með 13 ára stúlkum.“

„Minnir á grín Ricky Gervais um hann á Golden Globes verðlaunahátíðinni: „Kvikmyndin Once upon a Time In Hollywood var löng. Leonardo DiCaprio var viðstaddur frumsýninguna og í lokin var stefnumótið hans orðið of gamalt fyrir hann.““

„Leo velur sér kærustur af forsíðu Vogue.“

„Ertu að segja að hann hafi átt kærustu Á HVERJU ári síðan 1999? Kannski ætti hann að gefa sjálfum sér smá tíma af og til.“

„Þetta eru ekki geimvísindi, gaurinn vill einfaldlega ekki láta binda sig niður, svo hann velur sér nýjar kærustur áður en þær byrja að velta fyrir sér hvað gerist næst í lífi þeirra.“

„Hann er 51 árs og hefur aldrei verið giftur. Lúser.“

Einn veltir fyrir sér af hverju flestar kærusturnar eru fæddar í tvíburamerkinu.

Nokkrir henda í súlu- og myndarit.

Einn setur inn kosssenu úr myndinni Wolf of Wall Street og segir hana hafa þurft 28 tökur. Leikkonan Joanna Lumley sem Leo kyssir er 28 árum eldri en hann, fædd 1. maí 1946.

Einn kemur með skýringu við hverja kærustu:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“