fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Laundóttir Freddie Mercury látin eftir langa baráttu við sjaldgæft krabbamein

Fókus
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 15:30

Freddie Mercury

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskylda konu, sem sögð hafa verið laundóttir Freddie Mercury, söngvara Queen, hefur staðfest að hún sé látin, aðeins 48 ára að aldri, eftir langa baráttu við sjaldgæft krabbamein í hrygg.

Daily Mail greinir frá því að Mercury hafi kallað dóttur sína „Bibi“ og einnig notað gælunöfnin „trésor“, sem þýðir fjársóður á frönsku og „litla froskinn sinn“. Tilvist dótturinnar kom fyrst fram opinberlega í bókinni Love Freddie, eftir Lesley-Ann Jones, sem kom út síðasta sumar.

Þar hélt Jones því fram að Mercury hefði eignast barnið í leynilegu sambandi árið 1976 og haft náið samband við hana allt til dauðdags árið 1991. Jones fullyrti í bókinni  að hún hefði í fórum sínu  DNA-gögn sem styddu fullyrðinguna.

Hélt tilvist dótturinnar algjörlega leyndri

Þá kom fram að Mercury hefði samið fleiri en eitt Queen-lag um dótturina og samband þeirra , þar á meðal lögin Bijou og Don’t Try So Hard.

Konan, sem gekk einungis undir dulnefninu „B“, vildi aldrei stíga fram undir fullu nafni þar sem hún starfaði sem læknir og óttaðist að það gæti haft áhrif á feril sinn og sjúklinga. Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að ekkill konunnar, nefndur Thomas, hafi sagt að eiginkona hans hafi látist eftir langa baráttu við strengjaæxli, afar sjaldgæft krabbamein í hrygg. Þau hafi átt saman tvo syni, níu og sjö ára gamla. Útför hennar hafi þegar farið fram og ösku hennar hafi verið dreift yfir Alpana.

Í yfirlýsingu Jones kemur fram að hún sé harmi slegin eftir fráfall konunnar enda hafi þær orðið nánar vinkonur við vinnslu bókarinnar. Það hafi verið dótturinni mikið hjartans mál að koma sannleikanum á framfæri um líf föðursins heimsfræga. Í bókinni kemur fram að Mercury hafi haldið tilvist dóttur sinnar algjörlega leyndri. Dóttirin fylgdist með ferðum hans og tónleikum Queen á heimskorti sem hann gaf henni. Bókin byggir á sautján bindum af dagbókum sem hún fékk frá föður sínum árið 1991, skömmu áður en hann lést úr lungnabólgu af völdum alnæmis. , skömmu áður en hann lést úr lungnabólgu af völdum alnæmis.

Fyrrverandi unnusta Mercury, Mary Austin, hefur dregið fullyrðingarnar í efa. Í viðtali við Sunday Times í ágúst sagðist hún yrði „undrandi“ ef Mercury ætti dóttur og hélt því fram að hann hefði ekki haldið dagbækur eða persónulegar minnisbækur. Jones segir lögmenn Austin hafa reynt að stöðva útgáfu bókarinnar, án árangurs.

Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að fjölskylda hinnar látnu dóttur íhugi nú að opinbera myndir af feðginunum til þess að kveða niður efasemdarraddir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“