

Leikarinn Kiefer Sutherland var handtekinn eftir atvik sem átti sér stað í Los Angeles á mánudaginn. Samkvæmt tilkynningu barst lögreglu tilkynning skömmu eftir miðnætti um árás sem beindist gegn bílstjóra deilileigubifreiðar (e. rideshare). Rannsókn leiddi í ljós að leikarinn hafði komið inn í bifreiðina þar sem hann veittist að ökumanninum með ofbeldi og hótunum.
Leikarinn var handtekinn á vettvangi en að sögn lögreglu þurfti brotaþoli ekki að leita sér læknisaðstoðar. Leikarinn verður ákærður fyrir hótunarbrot og verður mál gegn honum þingfest í febrúar. Kiefer var færður í fangaklefa en fljótlega sleppt gegn greiðslu tryggingar.
Eins og allir frægir sem hafa heimsótt Ísland telst Sutherland vera Íslandsvinur. Leikarinn er einna þekktastur fyrir hlutverk hans í spennuþáttunum 24 sem nutu gífurlegra vinsælda skömmu eftir aldamótin. Íslendingar þekkja hann kannski best úr grínatriði Steinda Jr. frá árinu 2009. Sutherland fagnaði áramótunum á Íslandi árið 2004 og varð þar forviða yfir skotgleði Íslendinga.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sutherland kemst í kast við lögin. Árið 2007 var hann ákærður fyrir ölvunarakstur í fjórða sinn og þurfti að afplána 48 daga í fangelsi. Árið 2009 var hann ákærður fyrir líkamsárás eftir að hann skallaði tískuhönnuðinn Jack McCollough á fjáröflunarviðburði. Leikarinn og hönnuðurinn náðu síðar sáttum og var ákæran felld niður.