Bergur Vilhjálmsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður segist sjá það í störfum sínum að það hafi aldrei verið mikilvægara að vekja athygli á andlegri vanlíðan fólks. Bergur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist margoft fara í útköll vegna sjálfsvíga og það færist í vöxt. Bergur gekk í fyrra 100 kílómetra frá Akranesi til Reykjavíkur. og dró á eftir sér 100 kílóa sleða til styrktar Píeta-samtökunum og ætlar í sumar að endurtaka leikinn og fimmfalda vegalendina og ganga yfir landið endilangt:
,,Fyrst átti þetta bara að vera göngutúr með pabba mínum, en svo vatt þetta bara upp á sig. Fólki í kringum mig fannst galið að ég myndi gera þetta án þess að gera þetta fyrir neinn málstað eða vekja athygli á þessu. Svo leiddi eitt af öðru og á endanum fannst mér Píeta vera hárréttur málsstaður og ég finn hvað það er mikilvægt að það sé vakin athygli á þeim málaflokki. Ekki síst þegar kemur að karlmönnum, sem ennþá eru allt of oft að þjást í hljóði og tjá sig ekki,” segir Bergur, sem segir að gangan hafi orðið mjög erfið á köflum, en það hafi aldrei komið til greina að hætta:
,,Ætli ég hafi ekki sofið svona hálftíma í heildina af því að ég var skikkaður til þess. Það var eiginlega það versta, af því að þegar ég vaknaði aftur var ég algjörlega drenaður og búinn á því. Það var oft sem ég hugsaði: ,,Hvað í andskotanum er ég búinn að koma mér út í, en það kom samt aldrei til greina að gefast upp. Þegar mér leið sem verst og ég var bara að taka eitt og eitt skref í einu mundi ég alltaf eftir samtali sem ég hafði átt við konu sem var að æfa með mér sem missti pabba sinn úr sjálfsvígi. Hún sagði við mig áður en ég fór af stað: ,,Þetta eru þínar byrðar í 48 tíma. Getur þú ímyndað þér hvað fólkið sem þú ert að labba fyrir er að bera sínar byrðar lengi?” Þetta sat í mér og hjálpaði mér þegar þetta varð erfitt.”
Bergur gekk með miða með einkennisorðum sem hann svo sleppti á tíu kílómetra fresti. Orðin voru depurð, þunglyndi, kvíði, áhyggjur, sjálfsvígshugsanir, sektarkennd, áföll, ofbeldi og fíkn. Bergur hefur lengi unnið sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hefur séð það í störfum sínum hve algengt er að fólk sé að þjást gríðarlega andlega og oft sé það orðið of seint þegar þeir fá útkallið:
,,Ég hef séð þetta svo oft í störfunum fyrir slökkviliðið þegar við förum í útkall sem eru tengd sjálfsvígum eða sjálfsvígstilraunum. Við förum í ótal útköll sem tengjast andlegri vanlíðan og oft kemur í ljós að fólk vissi ekki einu sinni af Píeta-samtökunum. Það var eitt af því sem fékk mig til að gera þessa hluti og ákveða að gefa af mér til þessara samtaka. Þessi verkefni eru alltaf að færast í vöxt hjá okkur og það er alltaf verið að gefa okkur betri tól til að eiga við þessi útköll. Stundum kallar lögreglan á okkur, en stundum köllum við á lögregluna. En við förum í allar þessar aðstæður. Ég hef komið að manneskju sem er nýbúin að hengja sig, manneskju sem er nýbúin að skjóta sig og fleira í þeim dúr. Við getum átt von á því að þurfa að mæta í alls konar aðstæður í okkar störfum,” segir Bergur, sem segir að það geti tekið mikið á að þurfa að mæta í aðstæður sem þessar:
,,Við fáum undirbúning undir þetta og lærum ákveðna verkferla. Maður veit við hvað maður vinnur og veit hverju maður getur átt von á. Fólk er mjög fljótt að sjá hvort það geti unnið þessi störf og hvort það sé yfir höfuð fyrir þig að geta þurft að mæta svona aðstæðum. Ég get bara talað fyrir sjálfan mig, en maður hugsar mjög oft á leiðinni í vinnuna: ,,Hvað ætli gerist í dag?” og þá er maður á ákveðinn hátt búinn undir það í undirmeðvitundinni. Þegar maður var að byrja var maður oft mjög kvíðinn, en svo öðlast maður reynslu og verður færari í að takast á við ólíkar aðstæður. Mikið af þeim útköllum sem við förum í kalla á mikla nærgætni. Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi, líka aðstandendur og fólkið í kringum þann sem þarf á hjálp að halda.”
View this post on Instagram
Sem fyrr segir ætlar Bergur að hér um bil fimmfalda vegalengdina sem hann gengur í sumar til styrktar Píeta og sem fyrr með 100 kíló í eftirdragi:
,,Ég hugsa að þetta endi í 500 kílómetrum sirka. Ég fer frá Goðafossi fyrir norðan og alla leið að Gróttuvita. Ég mun ganga yfir Sprengisand og fara yfir hálendi Íslands. Ég horfi á þetta sem ævintýri og vonandi verður alls konar veður og bara allt það helsta sem Ísland hefur að bjóða. Þetta spurðist vel út í fyrra, þannig að það kemur með mér núna hópur sem ætlar að taka þetta allt upp á filmu og líklega munu þau þá ná að fanga allan tilfinningaskalann hjá mér. Það er fallegt hvað þetta verkefni hefur stækkað mikið og það sýnir mér bara hvað ég er umkringdur frábæru fólki. Það er virkilega gaman að finna að fólk vill vera með þegar það finnur að það er góð orka og málsstaður á bak við hlutina.”
Hægt er að nálgast viðtalið við Berg og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.