„Við hjá Eignasýn viljum ekki bara bæta við þjónustu, heldur búa til nýja upplifun á fasteignamarkaðnum. Markmiðið er að eignir í sölu dreifist víðar, veki sterkari viðbrögð og fangi fleiri augu. Við viljum því marka okkur sérstöðu með því að bjóða upp á hágæða myndbandsupptökur, faglega framsetningu og áhrifaríka miðlun á bæði heimasíðu okkar og samfélagsmiðlum,“ segir Alexander í samtali við DV.
„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum og prófa nýjar leiðir. Í stað þess að kyrrstæðar ljósmyndir tali fyrir heilar eignir, leggjum við áherslu á að fanga andrúmsloft, flæði og stemningu. Við erum að segja sögur, vekja tilfinningar og lýsa nærumhverfi – ekki bara sýna hrátt rými.“
„Flestir greiða nú þegar fyrir ljósmyndun þegar fasteign fer í sölu. Sú birting fær gjarnan einhverja þúsund smelli. En hvað ef aðeins hærri fjárfesting í myndbandsupptöku gæti aukið líkurnar á að eignin seljist hraðar og á betra verði?“ segir Alexander og bætir við:
„Með krafti myndbanda og samfélagsmiðla nær eignin til fleiri. Viðskiptavinir fá eignir sínar auglýstar á miðlum Eignasýnar auk þess sem þeir fá efnið í hágæðum til eigin notkunar.
Við viljum styðja seljendur, fasteignasala og byggingaraðila með betri markaðssetningu. Jafnframt sækjumst við eftir samstarfi við fyrirtæki sem tengjast fasteignum með einum eða öðrum hætti sem vilja verða sýnileg í samhengi sem skiptir máli.
Eignasýn stefnir á víðtækt samstarf við fyrirtæki á fasteignamarkaðnum og fyrstu viðbrögð markaðarins hafa verið mjög jákvæð. Markmiðið er einfalt: Að hraða ferli fasteignaviðskipta og bæta upplifunina fyrir alla aðila.
Skoða vefsíðu Eignasýnar sem fór í loftið í dag.