Fókus

Áramótaspá Ellýjar Ármanns: „Hann á eftir að gera meira, hann er bara rétt að byrja“

Mynd
Auddi Blö er bara rétt að byrja, segir spákonan Ellý Ármanns.

Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal, eða Auddi Blö eins og hann er kallaður, er rétt að byrja að sögn spákonunnar Ellýjar Ármanns. Ellý er gestur í áramótaþætti Fókuss, viðtalsþætti DV, þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öðru sem hefur verið í deiglunni síðastliðið ár.

Það kom margt áhugavert fram í þættinum, sem má horfa á í heild sinni

hér

eða hlusta á

Spotify

og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Hér að neðan má horfa á klippu úr þættinum þar sem Ellý spáir fyrir Audda.

 

„Það er regnbogi yfir honum og hann er með einhverja heillastjörnu yfir sér,“ segir Ellý um Audda.

„Hann er svo frjór og hann kemur með, held ég, þúsund hugmyndir á dag. Hann er að vinna með rétta fólkinu og það er bara dásamlegt að sjá þetta. Það er líka regnbogi yfir fjölskyldunni hans, og hann ræktar fjölskylduna þó það sé brjálað að gera hjá honum. Hann er fjárhagslega vel stæður. Það er bara allt gott í kringum hann.“

Auddi á eftir að gera fleiri frábæra hluti að sögn Ellýjar. „Hann á eftir að gera meira, hann er bara rétt að byrja,“ segir hún en bætir við að hann þurfi að passa að hafa jafnvægi.

Horfðu á Ellý spá fyrir Audda í spilaranum hér að ofan. Smelltu hér til að horfa á áramótaþáttinn í heild sinni, þú getur einnig hlustað á eða Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. 

Fylgdu Ellý á Instagram og TikTok.