fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hildur Kristín: Þarft ekki tíu skrefa morgunrútínu til að lifa góðu lífi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 29. nóvember 2025 10:30

Hildur Kristín Stefánsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir sá fyrir sér að árið 2025 yrði mikið tónlistarár, hún var að gefa út fyrstu sólóplötuna sína í janúar og ætlaði að vera óstöðvandi. En síðan lenti hún harkalega á vegg en ætlaði ekki að trúa því að hún væri að lenda í kulnum í þriðja skiptið. Hildur er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún ræðir um kulnun, ADHD, hvernig hugleiðsla breytti öllu, það sem hún hefur lært um taugakerfið og svo margt annað.

Hlustaðu á þáttinn á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Textabrot úr þættinum má lesa hér að neðan.

Hildur fer um víðan völl í viðtalinu og berst talið að heilsumenningu (e. wellness culture), sem mjög vinsæl núna á samfélagsmiðlum en eins og svo margt annað þá virðist hún hafa færst í öfgana. Það er ógrýnni af myndböndum þar sem fólk deilir sinni „self-care“ rútínu og er þetta oft langt ferli með mörgum skrefum, það þarf að vakna klukkan fimm til að hefja rútínuna og kaupa ýmsar vörur til að fullkomna hana.

Hildur Kristín Stefánsdóttir. Mynd/Juliette Rowland

„Mér finnst það bara vera kvíðavaldandi. Sérstaklega hvernig þetta er oft sett fram,“ segir Hildur og bætir við að þó fólk meini oftast vel með þessum myndböndum þá geti þau haft skaðleg áhrif á aðra.

„Það er líka oft verið að sýna mikið af hlutum sem fólk þarf að kaupa, þetta er náttúrulega ákveðin sölumennska og margir sem eru að gera þessi myndbönd fá þessa hluti gefins […] Það er bara flókið yfir höfuð hvernig samfélagsmiðlar láta mann oft efast um sjálfan sig. Eins og: Ef ég ætla að eiga gott líf þá verð ég að vera með tíu skrefa morgunrútínu. Ég held að við konur upplifum þetta sérstaklega, þessu er beint mikið að okkur,“ segir hún.

„Manni líður eins og maður þarf að kaupa alla þessa hluti og gera allt þetta til að vera eðlileg. Ég held þetta hafi líka meiri áhrif á þig ef þú ert með lágt sjálfstraust, í ójafnvægi eða kvíðin að eðlisfari eða eitthvað svoleiðis. Þá eru þessi skilaboð miklu líklegri til að láta þér líða illa.“

Mynd/Juliette Rowland

„Mér finnst líka mjög erfitt að horfa á áhrifin sem þetta hefur á unglingsstelpur. Ég á þrettán ára stjúpdóttir og hennar morgunrútína er orðin mjög flókin. Þetta er svo mikið flækjustig á lífinu, að halda að við þurfum að fara í gegnum þetta allt til að eiga eðlileg lífsskilyrði.“

Hildur ræðir þetta nánar í þættinum sem má hlusta á hér. Hún opnaði í haust síðuna Anda inn (@anda.inn) á TikTok og Instagram þar sem hún deilir alls konar fróðleik, ráðum og öðru tengdu rólegra lífi og náttúrulegum leiðum til að líða betur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set