fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Ragga Nagli ósátt – „Kim Kardashian er ömurlegasta fyrirmynd kvenna“

Fókus
Fimmtudaginn 9. maí 2024 15:30

Kim Kardashian olli usla á Met Gala í ár. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kim Kardashian olli talsverðu uppnámi á nýafstöðnum Met Gala-fagnaði þar sem hún mætti í kjól sem beinlínis virtist brjóta í bága við einhverjar heilbrigðisreglugerðir. Samfélagsrýnirinn og sálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, er allt annað en sátt við stjörnuna áhrifamiklu og segir hana ömurlega fyrirmynd kvenna.

„Fyrir Met Gala ballið árið 2022 neitaði hún sér um grunnþörf mannsins í fóðri til að smokra sér í kjól af Marilyn Monroe. Í ár gekk hún þó skrefinu lengra með að neita sér um enn mikilvægari grunnþörf sem er súrefni til að smokra sér í korsilettu. Af myndum að dæma virðast innyflin vera í kremju, rifbeinin í mauki og öndun virðist ekki vera í boði því lungun eru vakúmpökkuð með ekkert pláss til að þenjast um millimeter. Kim þurfti tvo aðstoðarmenn til að skakklappast upp tröppurnar til að komast inn á ballið og myndbönd bakvið tjöldin sýna marbletti á rifbeinunum. Með herkjum gat hún rétt kreist fram brosviprur því þjáningin úsaði af andlitinu,“ skrifar Ragga í færslu á Facebook sem hefur vakið athygli.

Kjóll Kim hefur vakið talsverða athygli og það ekki á jákvæðan hátt. Mynd/Getty

Ragga bendir á að Kim státi af 363 miljón fylgjendur á Instagram og að hún sé líklega valdamesti áhrifavaldur fyrir konur á öllum aldri. Það sé áhyggjuefni.

„Við sem erum eldri en tvævetur getum flest séð í gegnum þetta endemis rugl og afskrifað sem fullkominn galskap. En yngri kynslóðin með sinn óþroskaða framheila fá skilaboð um að þú átt ekki að njóta þín á balli með að klæðast þægilegum fatnaði. Þú átt heldur ekki að fara vel nærð á ball til að hafa orku í dans og gleði. Þú átt að svelta og þjást og varla geta hreyft þig um millimeter nema með aðstoð. Varla geta gubbað upp einu orði því þú nærð ekki andanum. Þú getur ekki komið niður matarbita á ballinu því maginn er reyrður í drasl.Gleymdu því að brosa… hvað þá hlæja,“ skrifar Ragga.

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Hún segir það fullkomna tímaskekkju að fatnaður sem virðist innblásinn frá Viktoríutímanum sé að dúkka upp í dag enda sá klæðnaður sprottin upp úr kúgun feðraveldisins sem vildi móta kvenlíkamann í vonlaust form.

„En árið 2024 vill Kim endurvekja óraunhæfar, óheilbrigðar hugmyndir um líkamlegt útlit kvenna sem hreinlega eru hættulegar heilsunni. Að klæðast korsilettu olli yfirliðum, rýrnun bakvöðva, afmyndun á hryggjarsúlu, fæðingargalla barna og meltingartruflunum. En það vill svo til að Kim selur einmitt níðþrönga húðlitaða sundboli innanundir fatnað til að stramma allt upp. Kim sendir skilaboð um að líkaminn þinn sé skrautmunur eins og Omaggio vasi eða Iittala kertastjakar. Þú átt bara að standa grafkyrr og láta horfa á þig. Það sé þitt framlag til heimsins.Bölsóti lokið….. sit hér í þægilegum joggingbuxum, víðum stuttermabol og Sloggi brjóstatopp að pikka á lyklaborðið,“ skrifar Ragga.

Hér má lesa pistil hennar í heild sinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir þetta raunverulegu ástæðuna fyrir að Hollandi var vikið úr Eurovision -„Allir voru komnir með nóg af stælunum í Ísrael“

Segir þetta raunverulegu ástæðuna fyrir að Hollandi var vikið úr Eurovision -„Allir voru komnir með nóg af stælunum í Ísrael“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fríða datt í lukkupottinn í Góða hirðinum –  „Þetta er fundur ársins“

Fríða datt í lukkupottinn í Góða hirðinum –  „Þetta er fundur ársins“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýtur frelsisins með nýtt nef

Nýtur frelsisins með nýtt nef
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fann smokkapakka í tösku eiginkonunnar: „Þá vissi ég að eitthvað væri í gangi“

Fann smokkapakka í tösku eiginkonunnar: „Þá vissi ég að eitthvað væri í gangi“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Landafræðin heldur sumum Íslendingum erlendis

Landafræðin heldur sumum Íslendingum erlendis
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Samhliða því að reyna að finna gullmolana í drullusvaðinu sem ég var stödd í“

„Samhliða því að reyna að finna gullmolana í drullusvaðinu sem ég var stödd í“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona leit hún út fyrir breytingarnar

Svona leit hún út fyrir breytingarnar