fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hættulegt kynlífstrend slær í gegn hjá háskólanemum – Læknar segja unga karlmenn í lífshættu

Fókus
Mánudaginn 2. desember 2024 13:57

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt kynlífstrend er að slá í gegn hjá háskólanemum í Bandaríkjunum en læknar og aðrir sérfræðingar vara við því.

USA Today greinir frá því að ungir karlmenn séu að innbyrða svokallaða „hunangspakka“ sem eru markaðssettir sem eins konar kynlífsbætiefni. Þetta á að vera „hreint og náttúrulegt“ en læknar vara neytendur við og segja efnið geta haft skaðleg áhrif á heilsuna.

Umræddur hunangspakki er sagður auka frammistöðu viðkomandi í svefnherberginu og auðveldar honum að viðhalda góðri reisn.

Honey Packet College Sex
Mynd/Getty Images

En samkvæmt USA Today hafa fundist önnur efni í mörgum hunangspökkum, efni sem finnst í lyfjum á borð við Viagra.

Þessi efni geta valdið alvarlegum aukaverkunum, eins og að blóðþrýstingur fari skyndilega upp úr öllu valdi, sjóntruflunum og jafnvel hjartaáfalli.

Það sem veldur sérfræðingum áhyggjum er að umræddir hunangspakkar eru ekki undir eftirliti matvæla- og lyfjastofnunar (FDA) Bandaríkjanna, heldur er þetta flokkað sem bætiefni.

„Þetta er ruglað. Þú getur farið í hvaða áfengisverslun eða bensínstöð sem er og keypt svona hunangspakka og þú hefur ekki hugmynd um hvað er inni í honum,“ sagði læknirinn Jesse Mills við USA Today.

Honey Girl contains hidden drug ingredient | FDA
Á vefsíðu FDA er varað við hunangspökkunum frá Honey Girl.

Læknar segjast sérstaklega hafa áhyggjur af því að ungir karlmenn séu að innbyrða hunangspakkana með áfengi, sem er vinsælt að gera í háskólapartýjum.

Karlmenn geta upplifað risvandamál á öllum aldri en það er sjaldgæft meðal ungra karlmanna. Þrátt fyrir það er vinsælt hjá ungum karlmönnum að taka inn efni á borð við hunangspakkana til að auka frammistöðu í svefnherberginu. Á bak við liggur gjarnan kvíði eða pressa að standa sig, gjarnan er bent á klám í þessu samhengi og hvernig það hefur gefið karlmönnum ranga hugmynd um hvað sé eðlilegt og hvað ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað