fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Fókus

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“

Fókus
Mánudaginn 29. apríl 2024 08:12

Guðrún Ósk og Tinna Barkardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Ósk er 33 ára, þriggja barna móðir úr Keflavík sem hefur upplifað meira en margir. Hún er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman. Guðrún ólst upp hjá einstæðri móður og segir hún móður sína vera klettinn sinn og sína helstu fyrirmynd.

„Ég og eldri systir mín erum alsystur en mamma og pabbi voru aldrei saman, bara þessi tvö skipti. Hann var mjög veikur alkóhólisti í afneitun en hann dó í september síðastliðinn vegna lífernis sem hann lifði og undirliggjandi hjartavanda.“ Hún segir samband sitt við föður sinn alltaf hafa verið stopult en hún kjósi í dag að muna góðu tímana.

„Ég er með skakkt rófubein og hryggjarliði eftir að hann beitti mig fyrst ofbeldi þegar ég var fjögurra ára. Ég var í kjól á leiðinni í jarðarför og gerði kjólinn skítugan og það voru afleiðingarnar.“

„Hann stóð og horfði inn um gluggann og svona“

Skólaganga Guðrúnar gekk brösuglega en hún var barn sem ekki passaði inn í kassann sem skólakerfið býr til fyrir börn. Henni gekk illa að læra og var því mikið að trufla og var tossi, eins og hún orðar það.

„Þegar ég var níu ára var sonur vinkonu mömmu að passa mig og nauðgaði mér. Hann var 17 ára, mjög veikur maður. Ég treysti systur minni fyrir því en ári seinna sprakk systir mín og sagði mömmu frá. Þá hafði hann líka verið að áreita hana kynferðislega og sitja um okkur. Hann stóð og horfði inn um gluggann og svona.“

Guðrún skipti nokkrum sinnum um skóla vegna eineltis en leið loks vel í skólanum þegar komið var í unglingadeild. „Ég var 13 ára og fór með eldri krökkum á FS ball. Þar prófaði ég fíkniefni í fyrsta skipti og loksins róaðist á mér hausinn. Ég vildi ekki fara aftur í þessa vanlíðan og var á vökunni í fimm daga.“

„Mér fannst ég ömurleg og leitaði strax aftur þá í djammið“

18 ára eignaðist Guðrún sitt fyrsta barn og hélt hún að það myndi bjarga sér. „Ég hélt að ég fengi þetta líf í hendurnar og allt yrði í lagi. Ég fékk svo mikið fæðingarþunglyndi að ég ýtti dóttur minni mikið yfir á mömmu og gat ekki haft hana á brjósti. Mér fannst ég ömurleg og leitaði strax aftur þá í djammið.“

Stuttu seinna kynntist Guðrún öðrum manni og innan skamms varð hún ólétt aftur. Hún var viss um að það yrði öðruvísi og hún væri tilbúin í það skipti. „Það gekk betur. Ég var með hana á brjósti í þrjá mánuði en mamma fékk frábæra hugmynd að við færum tvö saman í paraferð til Benidorm, að slaka á, þegar stelpan var þriggja mánaða. Við fórum og duttum í það.“

Einn daginn komu fimm löggur og barnavernd

Eftir smá tíma voru þau fjögur flutt í herbergi í Breiðholti, parið og börnin tvö.

„Ég man bara að við reyktum bara yfir börnunum þangað til einn daginn komu fimm löggur og barnavernd. Þau tóku börnin og ég var send á Vog. Ég man bara að ég hugsaði að þarna ætti ég ekki heima. Ég fór eftir fjóra daga en Þórarinn Tyrfingsson sagði við mig að við myndum sjást aftur. Ég hélt nú ekki.“

Endaði á götunni og byrjaði með manni í fangelsi

Lífið gerðist, neyslan kom í tímabilum, börnin komu og fóru þar til einn daginn voru þau komin á götuna og var hún þar í sjö mánuði.

„Ég fann fyrir svo miklum ótta, hvernig kom ég mér hingað?“ Hún fór á Vog eftir þennan tíma á götunni, algjörlega örmagna og tilbúin að hætta fyrir fullt og allt, sem gekk vel.

„Ég fór svo í samband með manni sem var í fangelsi. Ég byrjaði að spjalla við hann á Facebook og varð voða skotin í honum en vissi ekki fyrir hvað hann sat inni.“

Hún fór oft og reglulega í heimsókn til hans og varð ólétt af þriðja barninu sínu. Þau voru saman í tvö og hálft ár en hann sat inni í tvö ár af þeim tíma. „Ég var ólétt þegar hann kom svo heim og það var eins og ég væri með hvolp heima sem ég þyrfti að ala upp. Ég er í dag með Selfossleiðarsamning [sem er svipað á nálgunarbann en gegn fólki í fangelsi] á hann, þrátt fyrir að hafa reynt í byrjun þá þekkir strákurinn minn ekki pabba sinn.“

„Ég veit að einhverjir kalla mig tálmunarmömmu og svona en ég setti reglu til að vernda mig og börnin mín, fólk má segja það sem það vill um mig en ég stend upp vernda börnin mín og vildi allavega gera rétt í eitt skipti.“

Tinder martröð

Guðrún var edrú og í bata þegar hún fór á stefnumót með manni á Tinder sem endaði með martröð.

„Hann nauðgaði mér og ég var öll blá og marin. Ég var með far um hálsinn líka. Ég fór á neyðarmóttökuna og kærði en þrátt fyrir allt sem ég hafði í höndunum fór kæran ekki áfram. Ég get ekki lengur farið í Sporthúsið í Keflavík og triggerast mikið við auglýsingar sem hann er í.“

Eftir að Guðrún gekk út af neyðarmóttökunni gerði hún það sem hún kunni til að flýja sársaukann, hún deyfði sig með vímuefnum. Það ástand stóð yfir í einn mánuð áður en hún fór aftur í meðferð og hefur hún verið edrú síðan, frá árinu 2020.

Hlustaðu á þáttinn hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Antony til sölu
Fókus
Í gær

Frænka kærustunnar minnar er ólétt – og ég er pabbinn

Frænka kærustunnar minnar er ólétt – og ég er pabbinn
Fókus
Í gær

Viðurkenndi loksins að hafa notað megrunarlyf – „Allir halda að þetta sé Ozempic, þetta er annað lyf“

Viðurkenndi loksins að hafa notað megrunarlyf – „Allir halda að þetta sé Ozempic, þetta er annað lyf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kári útskýrir af hverju hann er ekki í stjórnmálum – „Ertu vitlaus drengur?“

Kári útskýrir af hverju hann er ekki í stjórnmálum – „Ertu vitlaus drengur?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sölva krossbrá þegar hann sá hvað lögreglumennirnir voru með á veitingastaðnum

Sölva krossbrá þegar hann sá hvað lögreglumennirnir voru með á veitingastaðnum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lítt þekkt ættartengsl: Grammy-verðlaunahafinn og bankaráðsmaðurinn

Lítt þekkt ættartengsl: Grammy-verðlaunahafinn og bankaráðsmaðurinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Yfirvöld á helstu partýeyjum Spánar lýsa yfir stríði gegn ofdrykkju og næturbrölti ferðamanna

Yfirvöld á helstu partýeyjum Spánar lýsa yfir stríði gegn ofdrykkju og næturbrölti ferðamanna