Eva Pandóra Baldursdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmenn Pírata, eru nýtt par. Þau hafa verið að stinga saman nefjum um skeið en á dögunum skelltu þau sér til Lissabon, höfuðborgar Portúgals, og áttu þar náðuga daga sem þau deildu með fylgjendum sínum á Instagram.
Tíu ára aldursmunur er á parinu en Eva Pandóra sat á þingi fyrir hönd Pírata 2016-2017, sem fulltrúi Norðvesturkjördæmis. Helgi sat hins vegar á þingi fyrir Pírata 2013 til 2016 og síðan aftur frá árinu 2017 til 2021.
Greint var frá því í byrjun árs að Helgi Hrafn og Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, væru skilin en saman eiga þau einn son sem er fæddur árið 2018. Eva Pandóra á einnig barn frá fyrra sambandi, son sem fæddur er árið 2016.
Fyrir áhugafólk um ættfræði má geta þess að Helgi Hrafn er eldri bróður þingkonunnar Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttur sem komst heldur betur í fréttirnar eftir að greint var frá handtöku hennar á skemmistaðnum Kíkí um helgina.