fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á barni – Opinberaði tíðindin í dómssal

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 2. maí 2022 10:55

Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó veðurguð eins og hann er oftast kallaður, á von á barni ásamt kærustu sinni, Alexöndru Eir Davíðsdóttur.

Ingó og Alexandra opinberuðu samband sitt í júní í fyrra með mynd sem Ingó og Alexandra birtu á Instagram. „Besta mín,“ skrifaði Ingó þegar hann birti myndina.

Greint var frá því að parið ætti von á barni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en Ingólfur er staddur þar vegna dómsmáls síns gegn Sindra Þór Sigríðarsyni.

Aðalmeðferð í málinu fer nú fram en Ingó stefndi Sindra fyrir meiðyrði vegna ummæla sem sá síðarnefndi lét falla á samfélagsmiðlum sumarið 2021. Ummælin voru látin falla í kjölfar harðra ásakana sem fjöldi kvenna lét falla á hendur Ingó fyrir kynferðisbrot.

Blaðamaður DV er staddur í réttarsal og mun flytja tíðindi af málinu þaðan í dag.

Sjá einnig: Réttarhöldin í máli Ingós gegn Sindra hafin – „Ég er búinn undir allt“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“