fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Stjörnukokkur segist eiga íslenskri móður sinni útlitið og bragðlaukana að þakka

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 23. mars 2022 10:42

Rachel Allen og móðir hennar Hallfríður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írski stjörnukokkurinn Rachel Allen opnar sig um samband sitt við „ótrúlega“ móður sína í viðtali við RSVP Magazine. Móðir Rachel er hin íslenska Hallfríður Reichenfeld og faðir hennar er írskur, Brian O‘Neill.

„Hún er alveg ótrúleg mamma, virkilega yndisleg og róleg. Hún er líka mjög skemmtileg, bara það að vera í kringum hana lætur manni líða betur,“ segir hún.

„Mamma spáir ekki í litlu hlutnum. Það hafa komið tilfelli þar sem ég hef verið í einhvers konar krísu og leitað til hennar og hún hjálpaði mér að setja hlutina í samhengi og að átta mig á því að aðstæður eru ekki jafn erfiðar og ég taldi í fyrstu.“

Stjörnukokkurinn ólst upp hjá foreldrum sínum í Foxrock í Dublin og viðurkennir að hún sé mjög heppin að móðir hennar sé enn á lífi. „Því ég veit að margir hafa misst mæður sínar og það er mjög sorglegt,“ segir hún.

„Það frábæra er að mamma er í góðu formi, heilbrigð og spilar tennis og golf. Hún fer líka í hádegismat með vinkonum sínum og lifir lífinu til hins fullnustu.“

Rachel Allen.

Lík móður sinni

Stjörnukokkurinn segist reglulega fá að heyra hversu lík hún er móður sinni. „Fólk segir að við séum mjög líkar og við tölum eins, en systir mín gerir það líka. En ég er einnig lík pabba, eins og hversu viðkvæm ég er varðandi suma hluti,“ segir hún.

Rachel hefur ekki heimsótt Ísland í nokkur ár en er spennt að koma aftur.

„Ég er alveg undir einhverjum áhrifum frá Íslandi, án þess að hafa áttað mig á því fyrr en einhver benti mér á það. Eins og ég elska norræna og skandinavíska hönnun, ég elska bragðið af matnum þeirra, sérstaklega af súrum gúrkum og fiski, þó svo ég hafi ekki alist upp við að borða það,“ segir hún.

„Ég myndi elska að fara aftur til Íslands, við fórum þangað reglulega þegar ég var barn en hef ekki farið í mörg ár.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður
Fókus
Fyrir 1 viku

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“