fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
Fókus

Þetta þarftu að passa ef þú ætlar að kaupa gjafabréf fyrir jólin

Fókus
Þriðjudaginn 29. nóvember 2022 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytendasamtökin hvetja neytendur til að hafa varann á við kaup á gjafabréfum. Í grein sem birtist á vefsíðu samtakanna í dag undir fyrirsögninni „Eru gjafabréf glapræði?“ er rakið hvað beri að hafa í huga ef til stendur að kaupa gjafabréf.

Neytendasamtökin segja að oftast sé kvartað yfir því að seljendur gjafabréfa leyfi viðskiptavinum ekki að nýta gjafabréf sem eru útrunnin.

„Slíkir viðskiptahættir verða að teljast mjög sérstakir enda hefur seljandi ekki orðið fyrir neinum búsifjum, þvert á móti. Búið er að greiða fyrir ákveðna vöru eða þjónustu og eðlilegt að seljandi veiti hana óháð því hvenær greiðsla fór fram.“

Að mati Neytendasamtakanna ættu fyrirtæki sem treysti sér ekki til að hafa eðlilegan gildistíma á gjafabréfum að hreinlega sleppa því að selja þau og ættu neytendur að forðast gjafabréf með stuttum gildistíma.

Hvergi sé fjallað um gildistíma gjafabréfa í lögum en Neytendasamtökin telja þó eðlilegt að slík bréf gildi í fjögur ár – sem er sami tími og almennur fyrningarfrestur á kröfum. Helst ættu gjafabréf þó ekki að renna út frekar en peningaseðlar.

Neytendasamtökunum er ekki kunnugt um hversu háar upphæðir tapist vegna gjafabréfa sem ekki eru notuð en ætla þó að sú upphæð sé umtalsverð. Dönsku neytendasamtökin hafi látið gera könnum fyrir nokkrum árum og þá fundið út að á fimm ára tímabili hefðu 40 prósent aðspurðra lent í því að sitja uppi með útrunnið gjafabréf.

„Neytendasamtökin vilja ekki ganga svo langt að segja að gjafabréf séu í öllum tilvikum glapræði eða ráða fólki frá því að kaupa gjafabréf yfirhöfuð en í ljósi þess hversu mörg gjafabréf fyrnast eða týnast er rétt að hafa varann á. Stundum gæti reynst farsælla að gefa einfaldlega reiðufé.“

Neytendasamtökin gefa eftirfarandi ráð þegar kemur að kaupum á gjafabréfum:

  • „Ef þú ert að kaupa gjafabréf skaltu passa að gildistíminn sé ekki of stuttur. Flest mál sem koma til kasta samtakanna varða gjafabréf með eins árs gildistíma.
  • Ef þú átt útrunnið gjafabréf skaltu samt sem áður láta reyna á það. Margir seljendur taka við gjafabréfum þótt gildistíminn sé liðinn.
  • Alltaf er eitthvað um að neytendur sitji uppi með sárt ennið því seljandi hefur hætt rekstri. Það er því góð regla að lúra ekki á gjafabréfum heldur nýta þau sem fyrst.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Var furðu lostinn þegar hann skoðaði betur myndina sem hann tók á Kársnesi

Var furðu lostinn þegar hann skoðaði betur myndina sem hann tók á Kársnesi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – „Spurningin sem ég fæ oftast sem Íslendingur“

Vikan á Instagram – „Spurningin sem ég fæ oftast sem Íslendingur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hafþór Júlíus í ótrúlegu Mr.Beast-myndbandi sem fer sem eldur um sinu um netheima

Hafþór Júlíus í ótrúlegu Mr.Beast-myndbandi sem fer sem eldur um sinu um netheima
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dóttir Bruce Willis deilir sorglegum fréttum af föður sínum

Dóttir Bruce Willis deilir sorglegum fréttum af föður sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hobbitinn – Einstök perla Tolkien um ævintýraleiðangur, háska og hetjudáðir

Hobbitinn – Einstök perla Tolkien um ævintýraleiðangur, háska og hetjudáðir
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heiðrar látna móður sína með flúri

Heiðrar látna móður sína með flúri