Það munaði engu að Leonardo DiCaprio fengi ekki hlutverk Jack Dawson í stórmyndinni Titanic, segir leikstjórinn James Cameron í nýju viðtali.
Ástæðan voru stælarnir í leikaranum sem, rétt nýskriðinn yfir tvítugt, var byrjaður að skapa sér nafn í Hollywood og þótti taka sjálfan sig helst til of alvarlega.
Í viðtalinu segir Cameron frá ýmsum áhugaverðum hlutum sem áttu sér stað þegar farið var af stað með þetta stórvirki kvikmyndasögunnar, ekki síst höfuðverknum við að finna réttu leikarana í aðalhlutverkin, elskendurnar Rose og Jack.
Titanic var tilnefnd til 14 Óskarsverðlaun og fékk 11 þeirra. Leo blessður þurfti þó að þola að vera ekki tilnefndur. Slíkar tölur er fáheyrða við Óskarsverðlaunaafhendingar. Lord of the Rings fékk til að mynda einnig 11 Óskara af þeim 11 sem myndin var tilnefnd til. Titanic hefur þó sigurinn þar sem tilnefningarnar voru fleiri.
Cameron vildi í fyrstu Gwyneth Paltrow í hlutverk Rose en hún afþakkaði. Sama gerðu Winona Ryder, Claire Danes, Gabrielle Anwar og Reese Witherspoon. En Kate Winslet, sem aldrei hafði komist á blað hjá Cameron vildi hlutverkið og var ekki á því að gefa sig. Hún sendi Cameron hvert bréfið á fætur öðru þar til Cameron samþykkti að hún mætti koma í prufu.
Eftir prufuna var Cameron þó ekki ekki fullviss um að Winslet væri Rose en þrjóska hennar borgaði sig að lokum og svo fór að Winslet hneppti hið dramatíska hlutverk kvenhetju Titanic. Sú ákvörðun Cameron að velja Kate Winslet reyndist því hárrétt.
En þá kom að því að velja í hlutverk ástmanns hennar, Jack. Margir komu til greina, til að mynda Matthew McConaughey, Chris O’Donnell, Billy Crudup og Stephen Dorff en Cameron fannst þeir allir of gamlir til að leika tvítugan pilt.
Hann vildi aftur á móti endilega fá Jared Leto en hann sagðist engan áhuga hafa. Tom Cruise sýndi hlutverkinu aftur á móti áhuga en þegar að bar fram launakröfur sínar var hann kvaddur með kurt og pí.
Cameron var þá bent á hinn unga og efnilega Leonardo DiCaprio, hann væri á réttum aldri og búinn að gera góða hluti á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi.
Cameron kallað því piltinn Leo til fundar við sig og segir leikstjórinn að DiCaprio hafi gengið inn á skrifstofun hans eins og hann ætti allan heiminn. En Cameron segir að þrátt fyrir allt hafi Leonardo haft þennan ólýsanlega sjarma sem hafði áhrif á svo að segja alla, líka hann sjálfan.
Cameron bað DiCaprio að lesa á móti Kate Winslet en DiCaprio sagði það af og frá, stórstjörnur á við hann færu ekki í prufur eins og óbreyttir.
Cameron tók þá í hönd hans, þakkaði honum innlitið og bað DiCaprio vel að lifa. Engin prufa, ekkert hlutverk.
Cameron segir DiCaprio hafa verið brugðið og spurt hvort hann yrði í alvöru útilokaður ef hann færi ekki prufu. Cameron sagði honum að slík stórmynd myndi taka tvö ár af ævi hans og hann ætlaði ekki að eyðileggja þau með því að sitja uppi með dekurrófu sem ekki hlýddi leikstjóra sínum.
Þá loks samþykkti DiCaprio, fremur sauðslegur þegar þarna var komið, að lesa á móti Winslet. Stóð hann með fýlusvip og heilsaði ekki einu sinni Winslet þegar að hún gekk inn.
En um leið og DiCaprio hóf lestur handritsins segir Cameron hafa myndast töfrar sem hann hafði aldrei áður upplifað.
Þessi tvö voru hreinlega fædd til að leika elskendurna sem örlögin léku svo grátt, slíkir voru straumarnir á milli þeirra.
Getur einhver ímyndað sér Titanic í dag með Reese Witherspoon og Matthew McConaughey í aðalhlutverkum? Eða Gwyneth Paltrow og Tom Cruise?
Varla.
Nú er bara að bíða og sjá hvort James Cameron getur haldið áfram að töfra með sinni nýjustu mynd, Avatar: The Way of Water, sem beðið er með óþreyju.
Sjáum til, hún verður frumsýnd 16. desember.