Kynlíf og allt sem því tengist er sífellt að verða minna og minna feimnismál, enda kominn tími til. Hjá mörgum er kynlíf eitt af grunnþörfunum og því fullkomlega eðlilegt að hægt sé að ræða um það alveg eins og við ræðum um hvað við borðum. Þessa breytingu sjá skýrt á gífurlegu framboði af kynlífstækjum og leikföngum en eftirspurnin eftir slíku er svo mikil að verslunum sem bjóða upp á slíkt hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og er samkeppnin hörð – en við neytendur kvörtum svo sem ekki undan því.
Það ætti því ekki að koma á óvart að tískustraumar hafi núna náð inn í svefnherbergið. En vefsíðan Lovehoney tók saman hvaða stefnur og straumar ættu að vera áberandi í byggðum og þá sérstaklega bólum á þessu ári þegar kemur að kynlífinu.
„Umhverfisvænt kynlífs felur í sér að velja leikföng sem er hægt að hlaða og eru gerð úr gæðaefni sem endist árum, jafnvel áratugum saman,“ segir kynlífsfræðingurinn Jessica O’Reilley.
Neytendur eru nú í auknum mæli farnir að velja sér vörur út frá umhverfissjónarmiðum og telja sérfræðingar að þetta muni einnig eiga við um kynlífstækin. Þar af leiðandi má merkja að framleiðendur kynlífstækja og tóla eru í auknum mæli farnir að merkja vörur sínar sem umhverfisvænar, herða reglur um framleiðslu og gæta þess að nota engin skaðleg efni við framleiðsluna.
Sérfræðingarnir hjá Lovehoney telja að aukin áhersla verði á árinu á að kynfræðsla og kynlífstæki verði aðgengileg öllum, sérstaklega eigi breytingar eftir að eiga sér stað hvað kemur fólki sem er með fötlun.
Sögulega hafi þjónusta við fólk með fötlun ekki falið í sér kynfræðslu eða fræðslu um kynferðislega unun. Sú breyting hafi þó átt sér stað undanfarin ár að kynfræðsla og markaðssetning á kynlífstækjum taka mið af jákvæðni í garð kynlífs (e. sex positive) og hafa sérfræðingar tekið eftir auknu ákalli um að slík jákvæðni nái einnig til jaðarsettra hópa.
„Eftirspurnin mun leiða til frábærrar framþróunar í kynlífstækni á næstu árum sem mun gera kynferðilega ánægju meira aðgengilega.“
Það er oftast ánægjulegt að stunda sjálfsfróun, eins og margir vita, en nýlegar rannsóknir hafa bent til þess að fróun megi nota í öðrum tilgangi en að sanna orðatiltækið sjálfs er höndin hollust. Sjálfsfróun sé nefnilega góð leið til að slá á verki.
Framleiðendur vinsæla kynlífstækisins Womanizer gerðu könnun árið 2020 þar sem viðskiptavinir voru spurðir hvort að sjálfsfróun dregið úr túrverkjum og svarið var skýrt – JÁ.
90 prósent þátttakenda mæla með sjálfsfróun til að berjast gegn túrverkjum og nærri helmingur þeirra, 42 prósent, mæla með sjálfsfróun frekar en verkjalyfjum.
Fleiri og fleiri eru farnir að hafna gamaldags hugmyndafræði um einkvæni. Það er að eiga aðeins í kynferðislegu eða rómantísku sambandi við einn aðila í einu. Siðferðislegt fjölkvæni (e. Ethical Non–Monogamy) er regnhlífarhugtak sem nær yfir mikið af óhefðbundnum sambandsformum sem tíðkast í auknum mæli í dag, svo sem fjölástir, makaskipti og opin sambönd.
„Skilgreiningin á því hvað telst vera „gott“ samband er að breytast,“ segir sambands- og kynlífsráðgjafinn Christine Rafe. „Fólk er nú farið að horfa frekar á það hvað gerir það hamingjusamt út fra þeirra eigin skilgreiningum. Þetta þýðir ekki að langtíma einkvæni geti ekki fullnægt þörfum fólks (með góðum samskiptum, virðingu og vilja til að læra) en ég hef tekið eftir þvi að fólk er farið að velta því fyrir réttmæti hugtaksins um „hinn eina rétta maka“. Það er felst mikil valdefling og frelsi í því að skapa okkar eigin útgáfu af samböndum, þá útgáfu sem gefur okkur mesta tengingu, unun og gleði.“