fbpx
Þriðjudagur 06.maí 2025
Fókus

Idolið kemur aftur í haust – Stöð 2 leitar að stjörnu

Rafn Ágúst Ragnarsson
Föstudaginn 10. júní 2022 15:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stöð 2 tilkynnir að Idol mun hefja göngu sína á ný í haust. Komin er upp skráningarsíða og undirbúningur að nýrri þáttaröð af þessum frægu þáttum er hafinn. Einnig mun svokölluð Idol lest fara hringinn um landið í leit að hæfileikafólki.

Idol þættirnir hafa verið sýndir víða um heim síðustu tuttugu ár við gríðarlegar vinsældir og margar af skærustu stjörnum tónlistarheimsins hafa stigið sín fyrstu skref þar. Fjórar íslenskar þáttaraðir voru sýndar á Stöð 2 á árunum 2003 til 2009.

Hlökkum til að sjá ungt hæfileika fólk á Idol sviðinu

„Stöð 2 tilkynnir með stolti að leitin að næstu Idol stjörnu Íslands er hafin.

Þættirnir verða á dagskrá í haust en leitin hefst núna á https://idol.stod2.is/

Við hvetjum alla áhugasama á aldrinum 16 til 30 ára að senda inn myndband með söngprufu. Idol lestin mun einnig verða á ferðinni í leit að hæfileikafólki um landið í sumar. Nánari dagsetningar verða auglýstar síðar.

Dómnefndin  verður skipuð nokkrum af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar í dag og við kynnum þau til leiks á  næstu dögum. Tónlistarstjórn þáttanna verður í höndum Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar sem stýrir einnig hljómsveit þáttanna,“ segir Stöð 2 í tilkynningunni.

„Við fundum fyrir miklum áhuga meðal áskrifenda okkar að vera með hæfileikaþátt og Idolið var oftast nefnt. Við vitum að það er fjöldinn allur af ungu fólki sem að vill nýta sér þennan vettvang til að koma sér á framfæri. Við erum gríðarlega spennt að vinna með öllu því fagfólki sem kemur að þáttunum og hlökkum mikið til að sjá ungt hæfileikafólk á Idol sviðinu í haust“ segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Gísli Pálmi fór með ættjarðarljóð á gröf Jónasar Hallgrímssonar

Gísli Pálmi fór með ættjarðarljóð á gröf Jónasar Hallgrímssonar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fanney snerti viðkvæman blett hjá sumum – „Fólk er farið að skuldsetja sig til að eignast þessa hluti, sem er galið“

Fanney snerti viðkvæman blett hjá sumum – „Fólk er farið að skuldsetja sig til að eignast þessa hluti, sem er galið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkt söngkona lést í eldsvoða

Þekkt söngkona lést í eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Beggi Ólafs uppljóstrar leyndarmálinu á bak við áhugann á meðan hann talar við bikiníklæddar konur

Beggi Ólafs uppljóstrar leyndarmálinu á bak við áhugann á meðan hann talar við bikiníklæddar konur
Fókus
Fyrir 5 dögum

Björgvin Franz og Berglind selja splunkunýja íbúð

Björgvin Franz og Berglind selja splunkunýja íbúð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svöl íbúð Prettyboitjokko til sölu

Svöl íbúð Prettyboitjokko til sölu