fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Birtir einkasamtal hans og Kim Kardashian – Óttast um öryggi Pete Davidson

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 15. febrúar 2022 14:00

Kanye West, Kim Kardashian og Pete Davidson. Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn Kanye West, sem kallar sig núna „Ye“, heldur áfram að tjá sig um fyrrverandi eiginkonu sína, Kim Kardashian, og kærasta hennar og grínistann Pete Davidson.

Í gær greindum við frá því að Kanye hefði verið iðinn að deila og eyða færslum á Instagram um helgina. Hann birti fjölda færslna um Pete, meðal annars skilaboð frá grínistanum.

Sjá einnig: Stormasöm helgi hjá Kanye West – Kallaði Pete Davidson fávita og birti persónuleg skilaboð frá honum

Nú hefur Kanye birt, og eytt, einkaskilaboðum milli hans og Kim þar sem hún segir að ef eitthvað kemur fyrir Pete þá verði það Kanye að kenna.

Skjáskot/Instagram

„Þú ert að búa til hættulegt og ógnvekjandi umhverfi, og einhver mun meiða Pete og það verður þér að kenna,“ á Kim að hafa sent Kanye.

Hann svarar þeim skilaboðum en sýnir ekki allt svar sitt heldur aðeins restina þar sem kemur meðal annars fram: „af ást og umhyggju.“

Skjáskot/Instagram

Kim á þá að hafa sent til baka: „Nú takk fyrir. Það er hættulegt fólk þarna úti og þetta er ógnvekjandi og það þarf ekki að vera það.“

Kanye svarar þá: „Ég mun alltaf gera allt til að vernda þig og fjölskyldu okkar að eilífu. Og ég hlustaði á þig og sagði öllum að passa upp á að ekkert komi fyrir Skete.“ Skete er það sem Kanye kallar Pete.

Kanye bað aðdáendur sína og stuðningsmenn um að meiða ekki Pete, eða Skete eins og hann kallar hann.

Kanye deildi þessum skjáskotum á Instagram og stuttu seinna birti hann annað skjáskot af skilaboðum sem Kim á að hafa sent honum í kjölfarið: „Af hverju geta samtölin okkar ekki verið á milli okkar?“

„Af því að ég fékk skilaboð frá uppáhalds manneskjunni minni. Ég er þinn helsti aðdáandi. Af hverju myndi ég ekki segja öllum!!“ Svaraði Kanye.

Skjáskot/Instagram

Kanye hefur nú eytt öllum færslunum en fjölmiðlar vestanhafs hafa greint frá meintum orðaskiptum. Kanye birti einnig mynd af blómum sem hann sendi Kim í gær, á Valentínusardaginn, og hann heitir því enn á ný að hann ætlar að sameina fjölskyldu þeirra.

Hann og leikkonan Julia Fox eru hætt saman eftir rúmlega mánaðarlangt samband.

Kanye West birti mynd af blómunum sem hann sendi Kim.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“

Andri Már varð fyrir alvarlegri líkamsárás og frelsissviptingu – „Í dag er ég frek­ar þakk­lát­ur fyr­ir þetta því þarna fékk ég nóg“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina

Hera Björk fallin niður í 27. sætið – Litlu má muna að lagið komist í aðalkeppnina