fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

Birgir Hákon stakk besta vin sinn með hníf í bakið – „Það dó eitthvað inni í mér eftir þetta kvöld“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 25. febrúar 2021 12:46

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn Birgir Hákon er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann vakti mikla athygli þegar hann kom fram á sjónarsviðið með sannar og hispurslausar lýsingar og myndbönd á íslenskum undirheimum og lífsstíl sem fæstir þekkja vel. Eftir að hafa verið djúpt sokkinn í glæpi og neyslu sneri Birgir við blaðinu. Í þættinum fer hann yfir kvöldið sem breytti öllu, þegar mamma hans greindist með krabbamein. Sama kvöld og hann fékk fréttirnar lenti honum og besta vini hans saman og Birgir slasaði vin sinn illa.

„Ég var ekki búinn að vera í neinu sambandi við mömmu og ég var bara ekki búinn að vera í neinum tengslum við raunveruleikann lengi og svo slasaði ég líka besta vin minn mjög illa sama kvöld og ég fékk fréttirnar af mömmu. Ég var búinn að vera vakandi í fjóra daga og það dó eitthvað inni í mér eftir þetta kvöld,” segir Birgir, sem á erfitt með að rifja upp atvikið þegar hann slasaði vin sinn.

„Þetta er minn allra besti vinur og við fórum að rífast og svo fór hann út og kom svo aftur inn og dinglaði og réðst á mig og það gerðist í þrígang þar til ég réðst að honum með hníf. Það urðu mikil átök og við rúlluðum niður stiga og svo ranka ég við mér þegar ég sé að hann er kominn með hníf djúpt inn í bakið. Ég hef aldrei verið jafnhræddur á ævi minni eins og á þessu augnabliki. Þessi drengur er eins og bróðir minn og mamma mín kallar hann son sinn, þannig að þetta var bara hræðilegt,“ segir hann og heldur áfram.

„Löggan var búin að vera að fylgjast mjög mikið með mér og ég var handtekinn af sérsveitinni í kjölfarið af þessu atviki. Það komu 14 bílar á planið Ef þú hefðir spurt mig viku fyrir þetta hvort ég væri að fara að hætta lífsstílnum mínum hefði ég hlegið að þér, en þarna gerðist eitthvað innra með mér sem breytti öllu.“

Leiddist snemma á ranga braut

Birgir segist snemma hafa leiðst á ranga braut. „Ég átti flókna æsku og það gekk mikið á. Pabbi minn og bræður mínir voru í mikilli neyslu og það mótaði mínar hugmyndir um lífið, þó að ég hafi kannski ekki fattað það. Ég var fimm ára gamall þegar ég sá í fyrsta skipti mjög alvarlegt ofbeldi og það sat lengi í mér og er í raun ein mín fyrsta minning. Svo var ég lagður í mikið einelti þegar ég var í grunnskóla og ég horfði á bræður mína sem voru inn og út úr fangelsi og beittu fólk ofbeldi og það kom enginn svona fram við þá, þannig að mér leið eins og ég yrði að vera meira eins og þeir. Af því að bræður mínir og pabbi voru í neyslu og oft ekki á staðnum leið mér eins og ég yrði að passa upp á heimilið frá því ég var mjög ungur. Í rauninni leið mér svoleiðis frá því ég man eftir mér. Svo sótti ég eðlilega ekki í góðan félagsskap og ég man að ég ætlaði aldrei að drekka, en flestir í kringum mig voru byrjaði á því 12 ára, þannig að mér fannst ég mjög seinn að byrja 14 ára.  Þaðan man ég að ég vildi bara komast í það ástand sem oftast.”

10 milljónir í reiðufé

Þegar Birgir var að byrja í tónlistinni sagði fólk í kringum hann að hann yrði þá að hætta öllum glæpum, af því að hann væri annars að vekja of mikla athygli á sér:

„Frændi minn sagði við mig að ég gæti ekki bæði gert tónlist og verið í því að selja eiturlyf og fremja glæpi, en ég var ekki sammála því og ætlaði bara að gera bæði. Ég var nokkur ár í því að selja eiturlyf og það var fullt af peningum í því. Ég var mest með tíu milljónir á mér í reiðufé. Ég seldi á virkum dögum, en djammaði um helgar í ákveðinn tíma, en svo tók neyslan yfir og rústaði lífi mínu og öllu í kringum mig. Ég var á hraðri leið inn á Litla Hraun þegar ég loksins hætti. Ég gerði nokkrar tilraunir þar sem ég náði að vera edrú í viku eða nokkrar vikur, en það tók tíma að verða loksins í alvöru edrú. Það er flókið að hætta þegar allur félagsskapurinn manns og tengslin eru inni í þessum heimi og hafa verið frá því að maður man eftir sér.”

Birgir hefur nú eins og fyrr segir snúið við blaðinu og vill gera allt sem hann getur til að bæta fyrir brot sín og hjálpa öðrum,

„Ég lýsi mér oft sem litlum hræddum mömmustrák svona innst inni og allt þetta sem ég hef gert í gegnum tíðina kom frá rosalegum ótta. Ég vil nýta allt það sem ég hef gert sem reynslu sem ég vonandi get notað til góðs og hjálpað öðru fólki sem er eða hefur verið í svipuðum sporum. Ég held að ég hafi verið búinn að vera edrú í hálft ár þegar það óx á mig samviska. Þá fékk ég í magann og fann að ég yrði að byrja að bæta upp fyrir það sem ég hef gert.”

Í þættinum ræða Sölvi og Birgir um rappið, glæpaheiminn á Íslandi, nýjan lífsstíl Birgis og margt fleira. Þú getur horft á hann hér að neðan en einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=TZ705dm2rC0&t=577s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu