fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

Utanríkisráðherra léttir á sér á Instagram – „Lögfræðingar hafa bent mér á að athæfið sé skýrt brot á lögreglusamþykkt“

Tobba Marinósdóttir
Miðvikudaginn 10. febrúar 2021 09:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra birti í gær skemmtilega mynd á Instagram síðu sinni frá því að hann var ungur gutti á Siglufirði með föður sínum. Það er stutt í grínið hjá Guðlaugi sem ber fyrir sig að hafa verið þriggja ára á þessum tíma og ekki áttað sig á að um lögbrot væri að ræða.

„Aftur til fortíðar! Finnst líklegt að ég sé eini utanríkisráðherrann sem hef pissað í ræsið fyrir framan Sparisjóð Siglufjarðar. Lögfræðingar hafa bent mér á að athæfið sé skýrt brot á lögreglusamþykkt en mér til varnar bendi ég á að ég var A) 3ja ára, B) það var yfirlögregluþjónn sem fyrirskipaði athæfið (sá hinn sami og tók myndina) og C) þetta hlýtur að vera fyrnt brot ☺️

Hvað sem því líður þá er þetta skemmtileg æskuminning. Það var alltaf gaman á Sigló með pabba,“ skrifar Guðlaugur við myndina.

 

Guðlaugur Þór er óhefðbundinn á Instagram. Hann birtir ekki stíliseraraðar myndir af mat og sjálfum sér heldur hundamyndir, myndir af eiginkonunni, blómum, slátri, vöfflupökkum og hversdagslegum hlutum úr lífi sínu. Svo sem þessari hressu köku sem aðstoðarmenn hans pöntuðu eitt sinn í kaffitímanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu