fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Fókus

Sjáðu hvað OnlyFans-stjörnurnar græða á mánuði – Gífurlega háar fjárhæðir

Fókus
Mánudaginn 25. október 2021 22:30

Myndir/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

OnlyFans er miðill sem gerir notendum kleift að selja efni sitt til áskrifenda gegn mánaðarlegu gjaldi. Klámstjörnur eru vinsælar á miðlinum en einnig áhrifavaldar sem selja djarfar myndir af sér. Aðdáendur geta einnig sent notendum skilaboð og lagt fram beiðni um myndefni gegn gjaldi.

Eflaust velta margir því fyrir sér hvað OnlyFans-stjörnur fá mikið á mánuði í gegnum áskriftir á miðlinum. The Sun birti um helgina samantekt þar sem farið var yfir hvað nokkrar af vinsælustu stjörnunum á miðlinum græða mikið á mánuði.

Cardi B – 2,7 milljarðar

Rapparinn Cardi B er ofarlega á listanum yfir þær stjörnur sem þéna mest á OnlyFans samkvæmt reiknivélinni sem The Sun notar í fréttinni. Samkvæmt henni þénar Cardi B 15,3 milljónir punda á mánuði, það eru um 2,7 milljarðar í íslenskum krónum.

Cardi B greindi frá því að hún væri að byrja með aðgang á OnlyFans í fyrra en hún tók það skýrt fram að aðdáendur hennar myndu ekki finna neinar nektarmyndir af henni á miðlinum.

Cardi B er sögð græða mikið á OnlyFans – Skjáskot/Instagram.

Chloe Khan – 213 milljónir

Chloe Khan er fyrrum PlayBoy-fyrirsæta sem öðlaðist frægð þegar hún tók þátt í söngkeppninni X-Factor árið 2010. Chloe, sem er 29 ára gömul, auglýsir OnlyFans-síðuna sína á öðrum samfélagsmiðlum sínum og tekur þar fram að hún deili þar efni sem ekki er við hæfi fyrir þá sem eru yngri en 18 ára.

Áskriftin að síðu Chloe kostar 15 pund, um 2.700 í íslenskum krónum, en hún er sögð þéna um 1,2 milljónir punda á mánuði. Það eru rúmlega 213 milljónir í íslenskum krónum.

Chloe Khan – Skjáskot/Instagram

Lauren Goodger – 178 milljónir

Raunveruleikastjarnan Lauren Goodger ætti ekki að þurfa að hafa miklar áhyggjur af peningum ef marka má OnlyFans reiknivélina. Samkvæmt reiknivélinni þénar Lauren, sem er 34 ára gömul, um eina milljón punda á mánuði, um 178 milljónir í íslenskum krónum.

Aðgangur að síðunni hennar Lauren er þó langt frá því að vera ókeypis en mánaðargjald fyrir aðganginn kostar 33 pund. Það eru tæpar 6.000 íslenskar krónur á mánuði.

Lauren Goodger – Skjáskot/Instagram

Megan Barton-Hanson – 129 milljónir

Love Island stjarnan Megan Barton-Hanson hefur verið með OnlyFans-síðu töluvert lengur en aðrar stjörnur á listanum. Þegar hún hóf göngu sína í raunveruleikaþáttunum árið 2018 var hún þegar byrjuð á OnlyFans. Hún ákvað þó að loka síðunni þegar hún skráði sig til þáttöku í þáttunum en hefur nú opnað hana á ný.

Megan, sem er 26 ára gömul, þénar samkvæmt reiknivélinni um 730 þúsund pund á mánuði. Það eru rúmlega 129 milljónir í íslenskum krónum. OnlyFans er þó ekki eina tekjuleið Megan því hún er sögð hafa grætt nokkuð háar fjárhæðir með því að selja nærföt.

Megan Barton-Hanson – Skjáskot/Instagram

Danielle Lloyd – 50 milljónir

Danielle er 37 ára gömul fyrirsæta og fyrrum fegurðardrottning en hún stofnaði aðgang sinn á OnlyFans árið 2019. „Fyrirsætubransinn hefur breyst rosalega síðan ég byrjaði í honum. Fullt af því sem maður er í fer beint á netið núna og þess vegna nota ég OnlyFans,“ sagði Danielle á sínum tíma þegar hún var spurð hvers vegna hún stofnaði aðgang á síðunni.

Peningar eru líklega ekki mikið vandamál fyrir Danielle því samkvæmt reiknivélinni þénar hún um 286 þúsund pund á mánuði í gegnum OnlyFans, það eru rúmlega 50 milljónir í íslenskum krónum.

Danielle Lloyd – Skjáskot/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu