Maður sem býr í Vesturbænum virðist hafa orðið fyrir sterkum áhrifum af ókunngri konu sem hann átti dálítil samskipti við hjá kaffihúsinu Kaffi Vest við Hofsvallagötu. Maðurinn hreifst svo af konunni að hann skrifar til hennar stutta sögu í íbúahóp Vesturbæinga, sögu sem mætti túlka sem ástarjátningu.
Frásögnin hefur vakið gífurlega athygli bæði á Facebook og Twitter. Margir hrífast af skrifum mannsins, ekki síst konur, ef marka má ummæli við færsluna. Má skilja af ummælum sumra kvennanna að þær vildu gjarnan sjá skrifum af þessu tagi beint til sín.
Frásögn mannsins er eftirfarandi:
„Þú horfðir aftur beint í augu mín og brostir.
Á meðan ég var að föndra við hjólið mitt og tefja tímann áður en ég lagði af stað í Melabúðina þá hugsaði ég hvernig ég gæti vakið athygli þína eitt augnablik svo ég stoppaði fyrir framan þig á bekknum og sagði “falleg” eða eitthvað svoleiðis held ég, þú leist upp og síðan á köttinn og sagðir “já er hún ekki kósý”……….
Ég vildi bara koma því til skila að ég átti ekki við köttinn heldur þig.
Ps. Eftir að hafa keypt mér hálfann kjúkkling og Pepsímax í Melabúðinni og var á leiðinni heim þá ásótti mig hugsunin um að skrifa um þetta atvik en ég veit ekkert af hverju ég set þessar hugsasnir fyrir almanna sjónir hérna en vanalega fara smásögurnar mínar beina leið í pappakassann hjá barnafötunum uppi á háalofti.
ps.ps þetta bréf er ekki kostað af Melabúðinni, PepsiMax eða Kaffivest.
Kveðja úr Vesturbænum.“
„Takk fyrir að deila þessu, það er ástæða fyrir öllu, bara hvað þetta var einlægt og fallegt. gefur gull í mund og bros á vör fyrir þónokkra sem þurfa svona gullkorn í október morgunsárið að halda. Takk kærlega,“ segir kona ein sem hrífst af þessum skrifum mannsins.
„Falleg saga,“ segir önnur og ein segir: „Ástir og örlög í Vesturbænum. Bíð spennt eftir framhaldssögu.“
Á Twitter skilgreina sumir þetta uppátæki mannsins sem sérstæða „pikköpp-línu“.
Ekki liggur fyrir hvort konan sem maðurinn beindi skrifunum til sé búin að sjá þau.