fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

Frægustu fatamistök stjarnanna

Fókus
Laugardaginn 23. janúar 2021 20:30

Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhjákvæmilegt að gera stundum mistök þegar kemur að klæðnaði, það hjálpar ekki að vera ávallt undir vökulu auga fjölmiðla sem festa það á filmu.

Þegar horft er til frægustu fatamistaka stjarnanna koma tvær geirvörtur við sögu en það hefur þótt gríðarlega mikið mál ef kvenkyns geirvarta slysast til að sjást. Svo eru það fatamistökin sem eru ekki eins mikið hneyksli, en fólk flissar yfir.

Myndir/Getty

Kjóllinn brást henni

Eitt frægasta „nipple slip“ allra tíma er örugglega þegar kjóll Töru Reid brást henni svo allsvakalega á rauða dreglinum fyrir afmæli Diddy árið 2004. Þó að Tara væri þegar þekkt fyrir leik sinn í American Pie varð hún heimsfræg á einni nóttu eftir þetta atvik. Tara var á rauða dreglinum að stilla sér upp fyrir ljósmyndara þegar kjóllinn rann til og beraði allt vinstra brjóst hennar. Hún tók ekki eftir því og það liðu heilar tíu sekúndur þar til fjölmiðlafulltrúi gerði henni viðvart.

Mynd/Getty

Gat hlegið að þessu

Fyrirsætan Chrissy Teigen vakti mikla athygli á rauða dreglinum fyrir AMA-verðlaunahátíðina árið 2016. Hún var í svörtum kjól eftir hönnuðinn Yousef Akbar.

Það var aðeins ein næla sem hélt saman kjól hennar og kom í veg fyrir að hún beraði sig alla, bæði að framan og aftan. Chrissy reyndi að halda kjólnum eins mikið í skorðum og hún gat, en hún endaði með að sýna meira en hún ætlaði sér.

Chrissy hafði gaman af atvikinu og gerði grín að því á Instagram daginn eftir. Hún þakkaði hárgreiðslukonu sinni fyrir, förðunarfræðingnum og svo að sjálfsögðu snyrtifræðingi sínum sem fjarlægði öll skapahár.

Chrissy baðst þó afsökunar á þessu og svaraði gagnrýnendum á skemmtilegan máta. Maður einn spurði hana á Twitter hvað hefði orðið um að vera „dama“. Chrissy svaraði: „Ég er nokkuð viss um að það hafi greinilega sést að ég sé dama.“

Mynd/Getty

Geirvarta ofurskálarinnar

Þann 1. febrúar 2004 voru tónlistarmennirnir Janet Jackson og Justin Timberlake að skemmta í hálfleik á Ofurskálinni (e. Super Bowl). Þar átti sér stað atvik sem er örugglega eitt frægasta og alræmdasta augnablik í langri sögu hálfleikjaskemmtunar Ofurskálarinnar.

Undir lok lagsins Rock Your Body átti Justin að fjarlægja brjóstahaldara Janet öðrum megin og geirvarta Janet, sem var skreytt einhvers konar skartgrip, var á sjónvarpsskjáum um 150 milljóna manna í rúma hálfa sekúndu.

Bandaríkjamenn voru hneykslaðir yfir atvikinu og sögðu Justin og Janet að þetta hefði ekki átt að fara svona, hann hefði óvart fjarlægt meira af brjóstahaldaranum en hann hefði ætlað að gera. En það hafði verið ýjað að því fyrir sýninguna að eitthvað „hneykslanlegt“ myndi gerast í hálfleik.

Því miður hafði þetta afdrifaríkar afleiðingar fyrir Janet, en ekki Justin sem kom fram aftur í hálfleik Ofurskálarinnar fjórtán árum seinna. Margar útvarpsog sjónvarpsstöðvar hættu að spila lög hennar eftir atvikið.

Skjáskot/YouTube

Hárið í viftunni

Söngkonan og gyðjan Beyoncé lenti í óheppilegu atviki á tónleikum árið 2013. Hún var að syngja lagið Halo og beygði sig niður fremst á sviðinu til að nálgast aðdáendur. Hún fór of nálægt viftu sem var á bak við hana og festist hárið á henni í viftunni.

Hún missti þó ekki úr nótu í laginu og söng á meðan öryggisverðir hjálpuðu henni að losa hárið úr viftunni. Hún hélt svo áfram að syngja og negldi það sem eftir var af laginu.

Myndir/Getty

Hneppti vitlaust

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, var hafður að háði og spotti í október síðastliðnum þegar glöggir netverjar tóku eftir því að hann hafi hneppt skyrtuermi vitlaust.

Myndir af mistökunum fóru eins og eldur í sinu um netheima. Stílisti stjarnanna, Lucas Armitage, sagði við MailOnline að þetta væri áhyggjuefni. „Við treystum forsætisráðherranum til að stýra þjóðinni svo maður vonast nú til að hann geti leyst einföld verkefni sem við leyfum börnum að gera,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu