fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

Konurnar í lífi Mason Greenwood og Phil Foden

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 7. september 2020 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mason Greenwood og Phil Foden, landsliðsmenn Englands, eru á heimleið eftir að hafa fengið heimsókn frá tveimur íslenskum stúlkum á hótel sitt hér á landi í gær. Sjá einnig: Enskir landsliðsmenn brutu reglur hér á landi í gær – Fengu íslenskar stúlkur upp á hótel

Það er óhætt að segja að fréttin hefur vakið mikla athygli og fjalla allir stærstu miðlar Bretlands um málið sem og stærsti miðill Danmerkur, Ekstrabladet, þar sem von er á breska landsliðinu til Danmerkur á morgun.

Önnur íslenska stúlkan sagði í myndbandi á Snapchat að hún væri að fara að hitta Mason Greenwood og viðurkenndi að hún væri stressuð. Í samtali við blaðamann DV sagðist hún hafa talað við Mason í nokkra daga áður en þau hittust, en hún vildi ekki segja hvar eða hvernig þau kynntust. Mason Greenwood er einhleypur og hætti með kærustu sinni í maí síðastliðinn. Phil Foden er í langtímasambandi og á barn.

Fyrirsæta og áhrifavaldur

Mason Greenwood og kærastan hans Harriet Robson hættu saman í maí síðastliðnum. Þau voru búin að vera saman síðan janúar 2019. Mason verður 19 ára 1. október en Harriet er 19 ára.

Harriet og Mason Greenwod – skjáskot Back Grid.

Harriet er fyrirsæta. Hún hefur setið fyrir hjá fyrirtækjum á borð við Boohoo og 11 Degrees Women. Hún er einnig áhrifavaldur með rúmlega 93 þúsund fylgjendur á Instagram en hefur lokað aðganginum sínum.

Harriet og Mason Greenwod.
Harriet og Mason Greenwod.

Áður en Mason og Harriet hættu saman voru þau dugleg að deila myndum af hvort öðru á samfélagsmiðlum.

Heldur sig frá sviðsljósinu

Phil Foden er í langtímasambandi með Rebeccu Cooke og eiga þau saman tæplega tveggja ára gamlan strák.

Phil Foden og Rebecca Cooke.
Phil Foden og Rebecca Cooke ásamt syni sínum. Skjáskot Twitter

 

Phil er tvítugur og samkvæmt The Sun er Rebecca nítján ára gömul. Hún kýs að halda sig utan sviðsljóssins og er með lokaðan Instagram aðgang. Phil deilir örsjaldan mynd af syni þeirra á Instagram auk þess sem hann hefur tekið hann með sér í vinnuna og verið myndaður með syni sínum á vellinum.

https://www.instagram.com/p/B9Oh2cGAGaK/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu