Hún er ókrýnd stíldrottning íslenskrar tónlistarsögu. Handhafi Fálkaorðunnar og fyrsta konan til þess að semja og flytja Þjóðhátíðarlagið. Hún Ragga Gísla er engri lík og gefur heitustu Hollywood stjörnum ekkert eftir.
Guðmunda Ragnhildur Gísladóttir betur þekkt sem Ragga Gísla hefur komið víða við enda hæfileikarík með eindæmum. Hún er fyrst og fremst ein af okkar ástsælustu söngkonum og starfaði til dæmis með hljómsveitunum Lummunum, Grýlunum og Stuðmönnum. Árið 2012 var Ragnhildur sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Ragga er einnig fantagóð leikkona og hefur leikið í kvikmyndunum Með allt á hreinu, Í takt við tímann, Karlakórinn Hekla og Ungfrúin góða og húsið.
Söngkonan glæsilega er 64 ára en hefur sjaldan eða aldrei litið betur. Henni mætti helst líkja við stórstjörnuna og söngyðjuna Jennifer Lopez sem sjálf virðist ekkert eldast. Báðar virðast hreinlega toppa sig ár hvert.
Ragga Gísla stígur svo sannarlega í tískuvitið eins og myndaþátturinn hér gefur til kynna en íslenskar konur mættu gjarnan taka sé hugrekki Röggu til fyrirmyndar og þora örlítið eða jafnvel miklu meira þegar kemur að fatavali.
Ragnhildur á stórglæsilega dóttur, Bryndísi Jakobsdóttur, með stuðmanninum og fyrrverandi varaþingmanni Samfylkingarinnar, Jakobi Frímanni.
Hér koma nokkrar gamlar og góðar
Vissir þú að Ragga Gísla var fyrsta konan til þess að semja og flytja Þjóðhátíðarlagið 2017?
Ragga er frábær vinkona!
„Ragga á einfaldlega skilið að komast á þennan lista á hverju ári því hún verður flottari með hverju árinu. Hún þorir að leika sér með samsetningar og vera djörf í fatavali og virðist komast upp með nánast hvað sem er. Frábær fyrirmynd þegar kemur að tísku,“ skrifar Marín Manda í Lífið.