fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fókus

María Birta um ástandið í Vegas yfir hátíðarnar – „Væri óskandi að fleiri myndu halda sig heima hjá sér“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 24. desember 2020 19:00

Hjónin María Birta og Elli Egilsson. Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Birta Bjarnadóttir verður í Las Vegas yfir hátíðarnar með eiginmanni sínum, listmálaranum Ella Egilssyni. Hjónin taka faraldurinn mjög alvarlega og kvarta ekki undan snjóleysinu í desember, enda mikið hrifnari af hitanum en íslenska frostinu.

María Birta, leikkona, fyrirsæta og athafnakona með meiru, býr í Las Vegas ásamt eiginmanni sínum listamanninum Ella Egilssyni. Áður en kórónuveirufaraldurinn skall á fór hún með hlutverk nunnu í sýningunni Atomic Saloon sem naut mikilla vinsælda.

Mynd/Aðsend

Einn pakki á dag

María Birta og Elli ætla að verja jólunum í Vegas. „Við höfum ekki alveg ákveðið hvernig jólin verða. Við höfum varla rætt það,“ segir María Birta.

„Hver einustu jól hérna í Vegas eru vanalega haldin heima hjá einum yfirmanni mínum. Hún býður öllum listamönnunum heim til sín, yfir fimmtíu manns, sem taka fjölskyldurnar sínar með og úr verður alveg mega skemmtileg veisla.“ María Birta og Elli fóru í veisluna í fyrra. „En því miður verður það ekki í ár af augljósum ástæðum,“ segir hún.

María Birta er vel gift og segir að Elli sé mun betri í að skipuleggja svona daga heldur en hún. „Hann er lærður matreiðslumaður svo ég veit allavega að vegan jólamaturinn okkar verður eitthvert svaðalegt gúmmelaði. Ég á líka mjög erfitt með að bíða með að gefa gjafir svo ég hef verið að gefa Ella einn pakka á dag síðan í nóvember.“

María Birta gaf Ella afmælisgjöf í byrjun desember, þó að hann eigi ekki afmæli fyrr en í apríl. Elli mun fagna fertugsafmæli á næsta ári og vildi bara eitt í afmælisgjöf; vintage Cadillac. María Birta fann hinn fullkomna bíl, þó nokkrum mánuðum of snemma.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by María Birta (@mariabirta)

Tölurnar sexfölduðust

Fyrir um mánuði voru sóttvarnareglur hertar í Vegas. „Þá fóru samkomubann úr 250 manns í aðeins 50 manns. Þetta hefur haft mikil áhrif á mig og mína vinnu, en annars engin önnur áhrif á okkur. Við höfum verið í einangrun hérna úti og aðeins hitt þrjár manneskjur síðan í mars. Við tökum þetta mjög alvarlega og erum að gera okkar besta til að smitast ekki,“ segir María Birta og bætir við að íbúar í Vegas skiptist í tvo hópa.

„Annaðhvort tekur það þessu alvarlega eða er alveg búið að gefast upp. Hér er allt opið og er búið að vera það í marga mánuði þrátt fyrir að Covid-tölurnar hafi sexfaldast í nóvember,“ segir hún.

„Við sjáum hvað gerist. Ég reyni að láta þetta ekki hafa áhrif á mig. Ég reyni að vera eins jákvæð og ég get, því ég get allavega ekki gert neitt meira sjálf til að stoppa þetta. Það væri bara óskandi að fleiri myndu halda sig meira heima hjá sér.“

Mynd/Aðsend

Einn dagur í einu

María Birta segist ekki hafa hugmynd um hvenær hún kemur næst til Íslands. „Ég gæti verið kölluð aftur til vinnu með sólarhrings fyrirvara. Svo veit ég að um leið og ég er byrjuð aftur að vinna þá fæ ég áreiðanlega ekkert frí í heilt ár. Ég lifi bara frá degi til dags núna, þetta kemur allt í ljós,“ segir hún.

Það er óhætt að segja að veðurfarið í Vegas sé ólíkt veðurfarinu á köldu eyjunni okkar. Það er mjög sjaldgæft að það snjói og meðalhitinn er á bilinu þrjár til fimmtán gráður. En það getur verið heitara, eins og á mánudaginn spáir átján gráðu hita. Aðspurð hvort það sé skrýtið að fagna jólunum í svona miklum hita segist María Birta vera orðin vön því.

„Við Elli vorum eiginlega búin að gera það að okkar jólahaldi að vera alltaf í Taílandi um jólin ef við vorum ekki í Los Angeles. Við fílum hita mun betur en snjó svo við njótum þess miklu betur að skreyta pálmatrén úti í garði en að búa til snjókarl,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“