fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Elísabet Gunnars velur 6 flottar grímur

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 11. október 2020 15:30

Mynd: Samsett DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elísabet Gunnarsdóttir, tískubloggari á Trendnet, deilir hér hugmyndum að fallegum grímum. Með aukinni grímuskyldu er ekki seinna vænna að tryggja sér góða grímu og ekki er verra ef hún er smart.

„Ég vil byrja á að taka það fram að ég er enginn sérfræðingur um grímur og hvet því fólk til að kynna sér hvaða grímur skila þeim tilgangi sem ætlast er til. Umhverfisins vegna þá er auðvitað best að nota fjölnota grímur og eru þær einnig fallegri að mínu mati – það er þó mælst til þess að þær séu þvegnar einu sinni á dag í það minnsta,” segir Elísabet sem sjálf er búsett í Danmörku og þekkir því vel hvernig það er að ferðast með grímu.

Elísabet á leið í flug.

„Eins og áður þá held ég með íslenskum aðilum sem hafa prófað sig áfram í grímugerð og nýtt t.d. gamla efnisbúta í verkefnið. Gríman er líklega aukahlutur sem er kominn til að vera og því um að gera að velta þessu aðeins fyrir sér. Ég tók þó eftir því að þessi aukahlutur var ekki hluti af sýningum hátískunnar í ár og held ég að það sé með vilja gert til að tengja ekki við eða minna fólk á þetta ömurlega ástand. Síðar meir held ég að þetta verði án efa hluti af vöruúrvali þeirra,“ segir Elísabet sem skrifar meðal annars um tísku á trendnet.is og sinnir frumkvöðlastarfi í Danmörku þar sem hún býr.

SPÚÚTNIK
„Spúútnik á Laugavegi selur úrval af grímum úr alls konar efnum.“

Mynd:Spútnikk
HILDUR YEOMAN
„Íslenski hönnuðurinn Hildur Yeoman selur grímur úr efnum sem annars fara til spillis í saumaskap annarra flíka. Mæli með að skoða úrvalið hjá henni á Skólavörðustíg, en ég hef heyrt að þær seljist hratt upp.“

Mynd: Hildur Yeoman
VETRARGRÍMA

„Hvernig verður grímunotkun þegar fer að kólna? Munum við öll bera gömlu, góðu lambhúshettuna sem er þá auðvelt setja fyrir munninn í vissum aðstæðum?“

Mynd: 66 gráður norður
APÓTEK
„Ég hef kosið að nota þessar hefðbundnu apóteksgrímur þegar ég þarf að ferðast milli heimilis míns í Danmörku og Íslands. Ég treysti þeim einhvern veginn best. Það þarf að gæta ýtrasta hreinlætis við notkun grímanna, snerta þær sem minnst og skipta um grímu þegar hún er orðin rök eða skemmd á einhvern hátt.“

ANDREA
„Andrea Magnúsdóttir, fatahönnuður og vinkona mín gaf mér og Ölbu þessar grímur til að nota. Mér finnst þær æði og vona innilega að hún ætli sér að setja þær í sölu í verslun sinni í Hafnarfirði.“
Mynd: Andrea
HEIMATILBÚIN GRÍMA
„Þegar dóttir mín (11 ára) ferðaðist ein til Íslands þá föndraði hún grímu úr gömlum Nike sokk af pabba sínum. Slíkar grímur virka ekki eins vel og þriggja laga, en geta verið sniðugar fyrir börn og þá kannski á þeim aldri þar sem ekki er raunveruleg grímuskylda. Sonur minn sem er 4 ára fékk einnig að velja sér grímu, en sú gerði ekki mikið gagn í sóttvörnum.“
Mynd: Aðsend
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar