Þegar þér er mál, þá er þér mál. Þá þarft þú bara að gjöra svo vel að nota það salerni sem býðst þá stundina. Yfirleitt er það ekki mikið vandamál, enda eru flest öll baðherbergi nokkuð venjuleg í hönnun. Þar má finna klósett til þess að setjast á, pappír til þess að skeina sér með og vask til þess að þvo sér um hendurnar eftir á.
Það að fara á klósettið og létta á sér er yfirleitt athöfn sem fólk vill gera í einrúmi, eða að minnsta kosti ekki með ókunnugu fólki. Bored Panda tók saman myndir af nokkrum ótrúlega furðulegum baðherbergjum sem líklega fæstir vildu þurfa að nota.
Hér getur öll fjölskyldan sameinast á baðherberginu.

Hvernig var þetta góð hugmynd?

Óheppilegt veggfóður á fatlaðaklósetti.

Já.. Hvað er hægt að segja?

Hverjum fannst þetta sniðug hönnun?

Þarftu að skreppa á klósettið í miðjum fyrirlestri? Engar áhyggjur þú missir ekki af neinu!

Það hafa líklega margir gestirnir velt fyrir sér valinu á málningunni.. og aðferðinni!

Hérna getur þú haldið þína eigin tónleika á meðan þú pissar.

Ekkert mál, hafðu fatlaðaklósettið bara uppi á sillu.

Þú verður að minnsta kosti ekki einmanna.

Er hann að dæma þig?

Allir starfsmennirnir geta rætt saman á meðan þeir fara á klósettið.

Þetta gæti orðið erfitt.

Börnin á þessum leikskóla þurfa ekki einu sinni að fara út úr skólastofunni.

Þú verður bara að ganga með buxurnar á hælunum ef þú vilt skeina þér.

Hér getur þú haft áhorfendur.
