fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Fókus

Pink á Íslandi – 300 manna eftirpartí: „Þetta er bara hress stelpa“

Fókus
Þriðjudaginn 28. maí 2019 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímavélin:

Það muna eflaust margir landsmenn eftir því þegar stórsöngkonan Pink átti leið á Klakann. Þetta var um sumarið 2004 en þá hélt söngkonan tvenna tónleika og spilaði hún bæði skiptin fyrir fullum sal í Laugardalshöll, eða rétt um tíu þúsund manns sem mættu til að fylgjast með herlegheitunum. Það sem vakti ekki síður athygli var að í kjölfar tónleikana hélt söngkonan 300 manna eftirpartí á skemmtistaðnum Felix og var nóg um slúðursögur af kvöldinu góða í kjölfar þess.

Lilja Björk Jensen, starfsmaður fyrirtækisins L Promotion, sem flutti söngkonuna til landsins, fullyrti í samtali við Fréttablaðið sumarið 2004 að Pink hafi skellt sér í Bláa lónið og krafist þess einnig að fara í go-kart hjá Icekraft. Einnig kemur fram að söngkonan hafi krafist þess að nóg yrði af ruslfæði baksviðs í Höllinni á stóra kvöldinu, meðal annars hamborgurum og pítsum auk þess að gríðarstórt ávaxtar- og grænmetishlaðborð þyrfti að vera til staðar. Að sögn Lilju þótti Pink og fylgdarliði hennar Ísland vera „ferlega töff“ og var ein af ástæðunum hennar fyrir heimsókninni sú að hún hafði heyrt að það væri svo gaman að djamma á Íslandi.

Ný tengdadóttir Íslands?

Þrátt fyrir að Pink hafi ekki átt mjög langa dvöl á klakanum voru fljótt komnar sögusagnir á kreik um að hún hafi eignast íslenskan kærasta. Mjög góð kynni tókust með Pink og nokkrum Ágústi Aðalsteinssyni, sem var betur þekktur þá sem Gústi skemmtanastjóri, en hann sá um veitingastaðinn 22 við Laugarveg.

Gústi neitaði harðlega að tjá sig um þetta mál í samtali við DV árið 2004, en hermt er að þau Pink hafi sést kveðjast innilega fyrir framan Nordica Hotel. Ágúst vildi hvorki játa né neita þessu en hann viðurkenndi að hann hafi kynnt söngkonunni fyrir næturlífinu í Reykjavík. „Þetta er bara hress stelpa,“ mælti skemmtanastjórinn en bætti síðar við að honum þykir fátæklegt mannlífið í borginni að kvöldi virkra daga.

Heimildir herma einnig að Pink hafi boðið Gústa í heimsókn til sín í Los Angeles. Á þessum tíma starfaði Gústi hjá fatabúðinni Nonnabúð en þar keypti söngkonan fatnaðinn sem sést hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hannes Hólmsteinn í hópi með skapara Hringadróttinssögu, ráðherra Biden, og versta óvini járnfrúarinnar

Hannes Hólmsteinn í hópi með skapara Hringadróttinssögu, ráðherra Biden, og versta óvini járnfrúarinnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einn ferðafélaga Sunnu Kristínar er lífsógnandi sjúkdómur – „Sem ég veit aldrei hvenær skýtur aftur upp kollinum“

Einn ferðafélaga Sunnu Kristínar er lífsógnandi sjúkdómur – „Sem ég veit aldrei hvenær skýtur aftur upp kollinum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ísdrottningin gefur út lífsstílsleiðarvísi – „Dýrmætt verkfæri fyrir allar stelpur og konur“

Ísdrottningin gefur út lífsstílsleiðarvísi – „Dýrmætt verkfæri fyrir allar stelpur og konur“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Börn Diddy standa með honum í flóðbylgju ásakana á hendur honum – „Síðasti mánuður hefur tortímt fjölskyldu okkar“

Börn Diddy standa með honum í flóðbylgju ásakana á hendur honum – „Síðasti mánuður hefur tortímt fjölskyldu okkar“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Diddy var kominn með buxurnar á hælana þegar ónefnd íþróttastjarna stöðvaði hann

Diddy var kominn með buxurnar á hælana þegar ónefnd íþróttastjarna stöðvaði hann
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ívar var fastur í hreinasta helvíti – „Þetta var mikil þjáning“

Ívar var fastur í hreinasta helvíti – „Þetta var mikil þjáning“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kjóllinn sem hefur skipt netverjum í fylkingar – Er þetta óviðeigandi fyrir vinnuna?

Kjóllinn sem hefur skipt netverjum í fylkingar – Er þetta óviðeigandi fyrir vinnuna?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Regína átti læknatíma á 20 ára afmæli sonarins – Færði hann um dag viss um að fréttirnar yrðu slæmar

Regína átti læknatíma á 20 ára afmæli sonarins – Færði hann um dag viss um að fréttirnar yrðu slæmar