fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Netavisen gefur 9,1 af 10 mögulegum

Fókus
Laugardaginn 10. ágúst 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú styttist í að sjónvarpsþáttaserían Beforeigners verði frumsýnd hér á landi en norskir áhorfendur fengu smjörþef af seríunni fyrir stuttu. Leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir fer með stórt hlutverk í þáttunum og segir á Facebook-síðu sinni vera pínu foj að Norðmenn hafi séð seríuna á undan henni. Íslenskir áhorfendur geta þó beðið spenntir því Netavisen í Noregi gefur þáttunum 9,1 af 10 mögulegum en þetta er í fyrsta skipti sem HBO framleiðir sjónvarpsþátt á Norðurlandatungumáli. Þættirnir verða sýndir um heim allan en alls fóru þrjú hundruð leikkonur á Norðurlöndum í prufu fyrir hlutverkið sem Ágústa Eva hreppti. Hún segir norskukunnáttu sína vafalaust hafa hjálpað, en hún er jafnframt fimur slagsmálahundur eftir að hafa æft bardagaíþróttir um langa hríð. Sagan gerist í Noregi og er að sögn Ágústu Evu ádeila á flóttamannavandann. Í þáttunum er töluð fornnorska sem líkist íslensku en Ágústa Eva segir seríuna vísindaskáldsögu sem hefjist þegar fólk frá víkingatímanum birtist upp úr sjónum og hefur líf með nútímafólki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum