fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

Steinunn Ólína í sambúð með Möggu Stínu: „Það er göldrum líkast“

Fókus
Fimmtudaginn 2. maí 2019 10:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona segist mæla með sambúð með vini af sama kyni. Þetta segir hún í Bakþönkum Fréttablaðsins en vinkonan sem um ræðir er Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona, sem betur er þekkt sem Magga Stína.

„Nýverið hóf ég sambúð með æskuvinkonu minni. Ástæða sambúðarinnar er einföld, við erum báðar leigjendur og einstæðar mæður. Þetta var sumsé skynsamleg sparnaðarhagræðing. Leigumarkaðurinn á Íslandi er svo mannfjandsamlegur að ég held að samyrkjubúskapur af þessu tagi verði brátt þrautalending fyrir einstæða foreldra sem vilja síður gista með börn sín á víðavangi,“ segir Steinunn Ólína.

Hún segir að það sé göldrum líkast að vera í sambúð með manneskju af sama kyni. „Það léttir allt heimilishald og barnauppeldi þegar maður hefur aðra fullorðna manneskju sér við hlið. Meiri stuðningur, minna basl jafngildir betri líðan. Ég mæli með þessu. Nú hef ég ekki verið í sambúð með manneskju af sama kyni síðan um tvítugt en það er göldrum líkast. Það er til dæmis stundum bara búið að elda mat og taka til! Stundum er líka búið að þvo þvott og jafnvel brjóta saman og ganga frá honum!,“ segir Steinunn Ólína.

Hún rifjar svo upp sögu af Stefán Karli heitnum eiginmanni hennar. „Ég er að verða fimmtug og þekki því fáa karlmenn sem vita hvernig föt komast hrein í fataskápa. Ég veit reyndar ekki hvernig þetta er hjá nútímafólkinu. Það kannski bara étur hör- og bambusfötin sín þegar þau óhreinkast til að menga ekki veröldina með sápunotkun. Ég held því miður að margir karlmenn, sem búa nú víst heima til þrítugs, trúi því enn að óhrein föt gangi í hægðum sínum inn í þvottavélina og setji hana af stað. Þvotturinn vippi sér svo yfir í þurrkarann eða hengi sig út á snúru og labbi svo að sjálfsögðu samanbrotinn ofan í skúffur og skápa. Ég minnist þess með mildi þegar maðurinn minn heitinn fann uppáhaldsgallabuxurnar sínar í buxnaskúffunni og sagði glaður: „Nei, þessar bara orðnar hreinar!“ Svo knúsaði hann þær innilega eins og til að þakka þeim fyrir ómakið.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum