fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Atli Már ráðinn til Secret Solstice

Fókus
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atli Már Gylfason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice en hátíðin verður haldin í sjötta sinn í Laugardalnum dagana 21. til 23. júní.

Atli Már hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum og hefur starfað á þeim vettvangi í tæpa tvo áratugi. Nú síðast sá hann um rannsóknarvinnu fyrir nýja sjónvarpsþætti fyrir framleiðslufyrirtækið Skot Productions. Áður gegndi hann starfi rannsóknarblaðamanns hjá DV og Stundinni auk þess sem hann hefur starfað sem útvarpsmaður á útvarpsstöðvunum FM957 og Flass 104,5 (nú KissFM) svo fátt eitt sé nefnt.

„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu verkefni en tónlistarhátíðin Secret Solstice hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því hún var fyrst haldin árið 2014. Það er frábær hópur sem kemur að skipulagningu og framkvæmd Secret Solstice í ár og útlit fyrir eina flottustu tónlistarhátíð landsins frá upphafi,“ segir Atli Már.

„Auðvitað verður það aðeins öðruvísi að sitja hinum megin við borðið og koma upplýsingum til fjölmiðla og almennings í stað þess að skrifa fréttir af hátíðinni eins og undanfarin ár en það er áskorun sem ég hlakka til að takast á við.“

Atli Már verður tengiliður fjölmiðla við framkvæmdaraðila Secret Solstice og mun kappkosta að aðstoða fjölmiðla sem kostur er við upplýsingaöflun, bæði fyrir hátíðina og á meðan á henni stendur. Hægt er að senda fyrirspurnir um hátíðina á atli@secretsolstice.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki