fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
Fókus

Hálsbólga og streptókokkar: 5 einkenni hálsbólgu og heilræði til að vinna bug á henni

Margrét Gústavsdóttir
Mánudaginn 28. maí 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæði veirur og bakteríur geta valdið hálsbólgu en hálsbólga er sýking í hálskirtlum og umhverfis þá.

Hálsbólga getur komið fram ein og sér en fylgir oft öðrum sýkingum til dæmis flensu og einkirningasótt. Hálsbólga leggst á alla aldurshópa en helstu einkenni hennar eru særindi í hálsi og eymsli við að kyngja. Ef sýkingin er af völdum bakteríu þarf stundum að gefa sýklalyf við henni.

Hver er orsökin?

Eins og áður sagði geta bæði bakteríur og veirur valdið hálsbólgu. Veirur sem valda kvefi og veiran sem veldur einkirningasótt geta einnig valdið hálsbólgu.

Veirur og bakteríur berast á milli manna með andrúmsloftinu eða með snertingu.

Algengasta bakterían sem veldur hálsbólgu er keðjukokkur (streptókokkar). Bakterían berst milli ýmist með andrúmslofti (svokallað úðasmit) eða snertingu (líkt og veirusmit).

Frá smiti geta liðið 2-4 dagar áður en einkennin koma fram.

5 einkenni sem eru lýsandi fyrir hálsbólgu:

  1. Hálssærindi og eymsli þegar kyngt er.
  2. Verkur getur leitt út í eyru.
  3. Roði í hálsi, bólgnir hálskirtlar, jafnvel með skán.
  4. Hiti.
  5. Eitlastækkanir á hálsi.

Ef hálsbólgan er af völdum veiru er hún yfirleitt vægari og henni fylgir oft kvef.

Í hálsbólgu af völdum coxsackie-veiru geta myndast litlar blöðrur á hálskirtlunum og á efri gómi.

Blöðrurnar springa eftir nokkra daga og þá myndast sár sem geta valdið miklum verkjum.

Hálsbólga af völdum keðjukokka (streptókokka) veldur yfirleitt bólgu í hálskirtlunum ásamt skánmyndun, særindum í hálsi, hita og andremmu.

Hvað er til ráða?

Leita skal læknis ef einkennin eru viðvarandi, þeim fylgir hár hiti eða ef útbrot koma fram. Greining læknisins byggist svo á einkennum. Stundum er tekið hálsstrok í skyndipróf fyrir ákveðna streptókokkategund sem er meðhöndluð með sýklalyfi.

Yfirleitt stafar engin hætta af hálsbólgu og hún hverfur að öllu jöfnu innan viku. Hinsvegar getur hálsbólga haft aðra sjúkdóma í för með sér:

  • Hálsbólga af völdum keðjukokka (streptókokka) getur valdið útbrotum (skarlatssótt).
  • Kýli geta myndast á hálskirtlum, yfirleitt öðru megin.
  • Eyrnabólgu.
  • Kinnholubólgu.
  • Einstaka sinnum kemur gigtsótt (e. rheumatic fever) eða nýrnasjúkdómur (e. glomerulonephritis) sem er sérstök tegund bólgusjúkdóms í nýrunum.

Hver er meðferðin og hvaða lyf eru í boði?

Oftast er bara beðið átekta og séð til hvort einkennin hverfi ekki fljótlega.

Hálsbólga af völdum bakteríu er hins vegar stundum meðhöndluð með sýklalyfjum. Það er engin lyfjameðferð við hálsbólgu af völdum veira.

Óþægindin við hálsbólgu má oft lina með volgum drykkjum og með því að halda sig að mestu við fljótandi fæði.

Gott er að drekka nóg af vatni og ekki er verra ef það inniheldur svolítið af sítrónu. Gætið þess þá að skola munninn aftur með volgu vatni svo að sýran úr sítrónunni skemmi ekki glerung tannanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Náðu að svindla yfir hundrað milljónum af íslensku fyrirtæki

Náðu að svindla yfir hundrað milljónum af íslensku fyrirtæki
Fókus
Í gær

Hugtakið „Stokkhólmsheilkenni“ byggir á röngu mati geðlæknis á aðstæðum í bankaráninu fræga

Hugtakið „Stokkhólmsheilkenni“ byggir á röngu mati geðlæknis á aðstæðum í bankaráninu fræga
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vill losna við Scott úr lífi sínu og raunveruleikaþáttunum – Íhugar að setja fjölskyldu sinni afarkosti

Vill losna við Scott úr lífi sínu og raunveruleikaþáttunum – Íhugar að setja fjölskyldu sinni afarkosti
Fókus
Fyrir 4 dögum

Patrekur klæddi sig upp sem Victoria‘s Secret fyrirsæta – Sjáðu hvernig hann fór að þessu

Patrekur klæddi sig upp sem Victoria‘s Secret fyrirsæta – Sjáðu hvernig hann fór að þessu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Vilhjálmur sagður hafa beitt Andrés hörðu

Vilhjálmur sagður hafa beitt Andrés hörðu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ótrúleg breyting á syni Schwarzenegger – Hefur misst 14 kíló og bætt á sig vöðvum

Ótrúleg breyting á syni Schwarzenegger – Hefur misst 14 kíló og bætt á sig vöðvum