fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Golfklúbbur Akureyrar og Arctic Open: Það er dýrlegt að spila golf á Akureyri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 12. maí 2018 10:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Akureyri er að mörgu leyti unaðsreitur kylfinga enda er þar hægt að stunda þessa vinsælu íþrótt í ægifögru umhverfi við afar góðar aðstæður. Golfvöllurinn að Jaðri er eini 18 holu völlurinn utan höfuðborgarsvæðisins og undanfarin ár hefur átt sér stað mikil og farsæl uppbygging á svæðinu.

Hið einstæða golfmót Arctic Open er síðan þekkt meðal kylfinga víða um heim, enda engu líkt að leika golf undir miðnættið á bjartasta tíma ársins, nærri heimskautsbaug.

Golfklúbbur Akureyrar, GA, rekur golfvöllinn að Jaðri og Lundsvöll, sem er 9 holu völlur rétt innan við Vaglaskóg. Enn fremur rekur GA Golfhöllina, sem er æfingasvæði fyrir kylfinga á neðri hæð Íþróttahallarinnar á Akureyri. Meðlimir í klúbbnum eru um 700 talsins og fá þeir aðgang að allri þessari aðstöðu sem sífellt er verið að endurbæta.

„Hér hefur orðið mikil uppbygging síðustu tíu árin í samstarfi við Akureyrarbæ ásamt gríðarlegri sjálfboðavinnu. Við hjá GA erum mjög lánsöm hversu mikið og óeigingjarnt starf hefur verið unnið af hálfu sjálfboðaliða á öllum sviðum, ekki einungis við uppbyggingu svæðisins heldur einnig því sem lýtur að rekstri GA. Endurbætur hafa verið gerðar á flötum og teigum á Jaðri og lokahnykkurinn í þessu ferli var nýtt æfingasvæði sem tekið var í notkun árið 2016. Núna veitum við kylfingum einhverja þá bestu aðstöðu sem völ er á,“ segir Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA.

Eins og nærri má geta eru margir kylfingar á Akureyri en golfvöllurinn að Jaðri er líka mjög vinsæll meðal ferðamanna. „Hér er vaxandi ferðamennska og undanfarin þrjú ár hefur töluverður fjöldi ferðamanna komið hingað úr skemmtiferðaskipum. En meirihluti ferðamanna sem nýta sér golfvöllinn að Jaðri er samt Íslendingar,“ segir Steindór.

Golf í miðnætursól

Hið magnaða golfmót Arctic Open verður haldið dagana 20.–23. júní. Kylfingar sem tekið hafa þátt í mótinu segja það vera draumkennda upplifun að spila golf í blóðrauðu sólarlagi um miðnæturbil svo nærri heimskautsbaugi. Stemningin í kringum mótið er engu lík og þátttakendur eiga ógleymanlegar stundir í góðra vina hópi.

Nánari upplýsingar um Arctic Open er að finna á vefsíðunni arcticopen.is.

Nánari upplýsingar um GA og golfaðstöðu á Akureyri er að finna á vefsíðunni gagolf.is eða í síma 462-2974.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum