fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Simmi og Tóti með nýjan pizzastað ?

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 10. júní 2019 12:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að senn líti nýr veitingastaður dagsins ljós hér á landi, sem mun sérhæfa sig í flatbökum. Sem kunnugt er þá sagði Þórarinn Ævarsson upp framkvæmdastjórastarfi sínu hjá Ikea í apríl síðastliðnum, en hann kom meðal annars að stofnun Dominos árið 1993 og kom fyrirtækinu í fremstu röð fram til ársins 2005.

Þórarinn, sem er bakari að mennt, er sagður í samstarfi með athafnamanninum Sigmari Vilhjálmssyni, sem áður var kenndur við Hamborgarafabrikkuna, en er nú helst kenndur við þriðja orkupakkann.

Sáust þeir kumpánar saman á dögunum, en Sigmar setti mynd af þeim á Instagram undir myllumerkinu #tveirharðir,  sem hefur gefið sögusögnunum um samstarf þeirra byr undir báða vængi.

Orðið á götunni er að veitingastaðurinn fái nafnið California Pizza Kitchen, sem er Bandarísk keðja er stofnuð var árið 1985 og nær til Mexíkó, Ástralíu, Asíu og Suður-Ameríku og er með um 250 staði í Bandaríkjunum.

Þórarinn neitaði því í byrjun maí að hann væri að opna nýjan pizzastað, en sagði í sömu andrá að það væri aldrei að vita hvað gerðist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“