fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026

Síminn að skella í lás ?

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 5. september 2018 15:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að miklar breytingar séu framundan hjá Sjónvarpi Símans í samkeppninni um áhorfendur. Síminn og SkjárEinn sameinuðust í Sjónvarp Símans árið 2016.

SkjárEinn hafði verið í opinni dagskrá frá stofnun árið 1999, til ársins 2009, þegar tekin var upp áskriftarleið, fram til 2015.

Frá sameiningu hefur línuleg dagskrá verið opin öllum í Sjónvarpi Símans, en fyrir 5000 krónur á mánuði má kaupa aðgang að mýmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum sem birtast ekki í opinni dagskrá, til dæmis í gegnum aðrar efnisveitur. Eru áskrifendur að slíkri þjónustu um 30.000 manns, sem telst nokkuð gott, en til samanburðar er Stöð 2 með um 20.000 áskrifendur.

Orðið á götunni er að Sjónvarp Símans undirbúi nú að læsa allri dagskrá sinni, nema þeim sem keypt hafa áskrift.

Telst þetta nokkuð djarft skref, þá helst gagnvart auglýsendum, sem nú eiga það á hættu að ná ekki til meirihluta þjóðarinnar í gegnum imbakassann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eru byrjuð saman aftur – Hann sleit sambandinu af furðulegri ástæðu í fyrra

Eru byrjuð saman aftur – Hann sleit sambandinu af furðulegri ástæðu í fyrra
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ætla að slást við Tottenham um Robertson – Fer Frítt frá Liverpool í sumar

Ætla að slást við Tottenham um Robertson – Fer Frítt frá Liverpool í sumar