fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026

Vandræði í Paradís

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. desember 2018 15:40

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að meirihlutasamstarfið í Reykjavíkurborg standi á laufabrauðsfótum eftir að skýrsla Innri endurskoðunar leiddi í ljós hversu stórkostlegt klúður, lögbrot og leynimakk viðgekkst í málinu. Viðreisn vill væntanlega fjarlægja sig sem mest frá málinu, enda aðkoma þeirra lítil sem engin.

Þórdís Lóa hlýtur að hugsa sér gott til glóðarinnar, nú þegar í ljós hefur komið að borgarstjóri er byrjaður að segja fjölmiðlum ósatt, er varðar rannsókn Innri endurskoðunar á tölvupóstum sínum. Dagur sagði í viðtali við DV að farið hefði verið yfir hans tölvupósta, en Innra eftirlitið segir það ekki rétt.

Þórdís er því í sterkri stöðu með að þrýsta á Dag til að segja af sér, þar sem Viðreisn ætti að geta hoppað yfir á hægri vænginn án mikillar niðurlægingar og myndað nýjan meirihluta.

Þá eru Píratar búnir að markaðssetja sig sem riddara sannleika, góðrar og gegnsærrar stjórnsýslu, sem er í hnotskurn allt það sem braggamálið er ekki og geta varla látið lygar borgarstjóra og hið hroðalega braggamál ganga yfir sig með slíkum hætti.

Líf Magneudóttir hjá VG mun þó líklega halda dauðahaldi í borgarstjóra í braggamálinu, enda framtíð hennar óráðin ef meirihlutinn springur.

Orðið á götunni er að þó svo borgarstjóri hafi þráast við að segja af sér hingað til og komist upp með það, hljóti að vera vaxandi krafa innan meirihlutasamstarfsins um meiriháttar breytingar. Nú sé hugsanlega góður tími fyrir borgarstjóra til að taka sér langt, jafnvel varanlegt, veikindaleyfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eru byrjuð saman aftur – Hann sleit sambandinu af furðulegri ástæðu í fyrra

Eru byrjuð saman aftur – Hann sleit sambandinu af furðulegri ástæðu í fyrra
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ætla að slást við Tottenham um Robertson – Fer Frítt frá Liverpool í sumar

Ætla að slást við Tottenham um Robertson – Fer Frítt frá Liverpool í sumar