fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026

Þolir karlaklúbburinn kastljósið ?

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 31. október 2018 11:58

Jónas Garðarson DV hefur ítrekað reynt að ná tali af formanninum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að harkalegar aðgerðir Sjómannafélag Íslands í garð Heiðveigar Maríu Einarsdóttur, formannsframbjóðanda, muni reynast sem olía á eldinn. Er forysta sjómannafélagsins sögð haga sér eins og drukknir dólgar og augljóst þyki að karlaklúbburinn vilji ekki fá „kellinguna“ upp á dekk, enda hafi hún gagnrýnt forystuna harðlega. Svo virðist sem að reglum félagsins hafi verið breytt til að koma í veg fyrir framboð Heiðveigar og þá virðast fundargerðir félagsins hafa farið fyrir ofan garð og neðan.

Vakna þá óneitanlega spurningar um hvort og þá hvað forystan hafi að fela, sem þoli ekki nánari skoðun Heiðveigar.

Heiðveigu er kennt um að samningaviðræður félagsins við önnur félög sjómanna hafi siglt í strand og þar með hafi hún unnið gegn hagsmunum félagsins, sem sé grundvöllur brottrekstrar úr félaginu. Mikill er máttur Heiðveigar ef satt reynist, enda kom hún hvergi nærri þeim viðræðum.

„Lýist fiskur ef lengi er barinn“ segir máltækið. Orðið á götunni er að Sjómannafélag Íslands geri sér ekki grein fyrir því, að í þessu tilfelli eru þeir fiskurinn, en ekki Heiðveig, líkt og upphafleg ætlun þeirra virðist hafa gengið út á, þar sem Heiðveig segist ætla að berjast áfram gegn þeim með kjafti og klóm.

Aðgerðir Sjómannafélagsins hafa orðið til þess að nú beinist kastljósið að þeim í meiri mæli en áður. Spurningin er hvort félagið þoli slíka upplýsingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eru byrjuð saman aftur – Hann sleit sambandinu af furðulegri ástæðu í fyrra

Eru byrjuð saman aftur – Hann sleit sambandinu af furðulegri ástæðu í fyrra
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ætla að slást við Tottenham um Robertson – Fer Frítt frá Liverpool í sumar

Ætla að slást við Tottenham um Robertson – Fer Frítt frá Liverpool í sumar