fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Klæðskerasniðið starf kynningarstjóra

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 25. október 2018 14:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, verði  ekki lengi atvinnulaus eftir að Efling – Stéttarfélag auglýsti eftir „drífandi ritsnillingi“ með reynslu af stjórnun kynningarmála. Engar menntunarkröfur eru gerðar til umsækjenda, en ljóst er að Gunnar Smári uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.

Líkt og fjallað hefur verið um varð fréttaskýring Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu, um óeiningu á skrifstofu Eflingar í kjölfar kosningar á nýrri forystu stéttarfélagsins, tilefni þess að Gunnar Smári sagði Sjálfstæðisflokkinn og skósveina hans koma í veg fyrir að hann fengi nokkurs staðar vinnu, eða verkefni við hæfi.

Í fréttaskýringu Agnesar var óeiningin á skrifstofu Eflingar sögð eiga skýringar að rekja til þess að reikningur frá eiginkonu Gunnars Smára hefði ekki verið samþykktur samstundis af fjármálastjóra Eflingar. Í kjölfarið sakaði Gunnar Smári fjármálastjórann um spillingu og vandaði henni ekki kveðjurnar.

Fáir ef einhverjir hafa skrifað meira um málefni verkalýðsins og hina lægst launuðu í þjóðfélaginu undanfarið en Gunnar Smári. Studdi hann einnig Sólveigu Önnu Jónsdóttur í formannskjöri Eflingar, sem gæti komið sér vel ef hann kýs að sækja um, enda virðist starfið klæðskerasniðið að hans hæfileikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“