fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Tækifæri til að gera alla ánægða

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 22. október 2018 19:30

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að það geti verið erfitt fyrir millistéttina að velja lið í komandi kjaraviðræðum. Öðrum megin höfum við hóp sem hefur rétt fyrir sér að það gangi ekki til eilífðar að leyfa stjórnendum, embættismönnum og kjörnum fulltrúum að hækka laun sín margfalt á við það sem býðst í venjulegum atvinnuauglýsingum. Á hinn bóginn er mikil hætta á því að launahækkanirnar verði étnar upp af verðbólgu, öll verð hækki og verðtryggð húsnæðislán sömuleiðis.

Önnur hliðin gerir fátt annað en að hamra á hvað laun sumra séu há á meðan hinir tala um stöðugleika. Eins og staðan er í dag þá bendir fátt til annars en að umræðan byggi á nákvæmlega sömu rökum ef atvinnurekendur sigra kjaraviðræðurnar, en ef verkalýðshreyfingin sigrar þá munu allir beina spjótum sínum að þeim ef það þarf aftur að fara leiðrétta lánin. Stóri fíllinn í stofunni, sem flestir reyndar sjá, sjá er skortur á ódýru húsnæði.

Orðið á götunni er nú sé tækifæri fyrir stjórnmálamenn að koma fram með almennilegar lausnir á húsnæðisvandanum, jafnvel pakka sem ríkisstjórnin gæti ekki hafnað, þó það væri bara til að viðhalda stöðugleika. Sá pakki gæti innihaldið tímabundna hreinsun á reglugerðum, hræódýrar lóðir við höfuðborgina í samstarfi við vinveitt sveitarfélag og hressilegan skattaafslátt á þá sem eru tilbúnir að byggja nokkur þúsund litlar ódýrar íbúðir.

Verkafólk gæti þá hugsanlega flutt á milli staða, elítan þarf ekkert að óttast á meðan og allir eru ánægðir nema þeir sem verða aldrei ánægðir. Slík tækifæri koma ekki á hverjum degi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“