Eyjan

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst: Ótrúlega lágt svarhlutfall hjá Áfram Ísland – Morgunblaðið túlkar niðurstöður frjálslega

Mynd

Morgunblaðið birtir í dag það sem það kallar nýja skoðanakönnun Gallup fyrir samtökin Áfram Ísland um afstöðu kjósenda til þess hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum Íslands við ESB. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins er hnífjafnt milli þeirra sem ætla að kjósa já og nei í atkvæðagreiðslunni.

Blaðamaður Morgunblaðsins dregur ýmsar ályktanir af könnuninni og segir þetta breytingu frá því sem verið hefur í fyrri könnunum, þar sem já-sinnar hafi „verið sjónarmun fleiri.“ Af þessu dregur hann þá ályktun að andvígir hafi sótt í sig veðrið.

Þessi könnun fyrir Áfram Ísland fór fram 15.-30. júlí á netinu, úrtakið var 1996 manns, 18 ára og eldri. Einungis 804 svöruðu þannig að svarhlutfallið var mjög lágt, 40,3%.

Til samanburðar má taka Maskínu könnun um sama efni, sem birt var í DV fimmtudaginn 30. júlí. Niðurstaðan var sú að af þeim sem tóku afstöðu sögðust 53% segja já en 47% nei. Það munar þannig heilum sex prósentustigum á fylkingunum, nokkuð sem sennilega enginn nema Morgunblaðið myndi kalla sjónarmun.

Ný könnun: Meirihluti ætlar enn að segja já

Maskínu könnunin var gerð dagana 22.-29. júlí og er því nær okkur í tíma en könnun Gallups sem gerð var 15.-30. júlí, þótt Áfram Ísland og Morgunblaðið hafi beðið með birtingu. Í könnun Maskínu var úrtakið 2255 manns og af þeim tóku 1865, eða 82,7%, afstöðu til spurningarinnar. Svarhlutfallið er því ríflega tvöfalt hærra hjá Maskínu en Gallup, auk þess sem Maskínukönnunin er nýrri en Gallup könnunin og ef hægt er að draga einhverjar ályktanir um að veður sé að skipast í lofti er það að já-sinnar séu í sókn.

Blaðamaður Morgunblaðsins freistast til að draga þá ályktun út frá lágu svarhlutfalli í Gallup könnuninni að e.t.v. bendi það til þess að lítil kjörsókn verði í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu hefur hins vegar verið mjög mikil, sem bendir til hins gagnstæða, að mögulega megi gera ráð fyrir góðri kjörsókn. Hátt svarhlutfall í könnun Maskínu gæti þá með sama hætti verið vísbending um góða kjörsókn.

Það er raunar sjálfstætt rannsóknarefni hvernig á því stendur að svarhlutfall könnunarinnar hjá Gallup er jafn lágt og raun ber vitni og væntanlega munu sérfræðingar fyrirtækisins rýna í það. Það gæti haft eitthvað með samsetningu úrtaksins að gera, eða það hvernig spurningin var orðuð en það kemur ekki nákvæmlega fram í frétt Morgunblaðsins.

Út frá öllu ofangreindu er eðlilegt að setja spurningarmerki við niðurstöður Gallup könnunar Áfram Ísland og Morgunblaðið gerir það raunar sjálft með afgerandi hætti. Lokasetning fréttar blaðsins um könnunina er: „Marktækur munur var á niðurstöðum allra hópa, en ekki í heildina.“

Með öðrum orðum er könnunin marktæk fyrir einstaka hópa, t.d. eftir aldri, búsetu eða fylgi við stjórnmálaflokka, en ómarktæk þegar á heildina er litið.