Fréttir

Ný könnun: Meirihluti ætlar enn að segja Já

Mynd

Meirihluti landsmanna ætlar að segja Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. 

Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu fyrir DV sem fór fram 22. - 29. júlí. 

Þegar horft er einvörðungu til þeirra sem taka afstöðu þá ætla 53 prósent að segja  en 47 prósent að segja Nei

Niðurstaðan er nánast sú sama og í fyrri könnun DV sem birt var 13. júní síðastliðinn, aðeins 0,1 prósent hefur sveiflast milli já og nei þegar litið er til þeirra sem taka afstöðu.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst verður spurt: „ Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“. Spurt var sömu spurningar í könnun Maskínu fyrir DV. 

Í þingsályktunartillögunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna verða einungis tveir valkostir,  eða Nei. Í könnun Maskínu fyrir DV var einnig gefinn kostur á að svara Veit ekki eða Vill ekki svara. Af öllum sem voru spurðir svöruðu 13,5 prósent Veit ekki og 3,8 prósent Vil ekki svara. Þegar þeir eru teknir með í reikninginn ætla 43,8 prósent að segja  og 38,9 prósent að segja Nei

Í fyrri könnun DV i júní var hlutfallið 44,5 prósent hjá þeim sem ætla að segja  og 39,4 prósent hjá þeim sem ætla að segja Nei. Munurinn milli kannanna er lítill. 

Elsti aldurshópurinn líklegastur til að segja já

Lítill munur er á milli kynja, 52,3 prósent karla og 53,7 prósent kvenna ætla að segja . 47,7 prósent karla ætla að segja Nei og 46,3 prósent kvenna.

Þegar litið er til aldurshópa er aldurshópurinn 70 ára og eldra líklegastur til að segja  eða 57,6 prósent. Er það viðsnúningur frá könnun í júní þegar sá hópur var líklegastur til að segja Nei.

Fólk á aldrinum 18 til 29 ára kemur næst á eftir, en 56,7 prósent ætla að segja Já, sem er aukning frá fyrri könnun DV um 4,4 prósent.

Í aldurshópnum 40 til 49 ára ætla 51,1 prósent að segja , sem er lækkað hlutfall í þeim aldurshópi miðað við fyrri könnun DV um 8 prósent.

54,3 prósent fólks á aldrinum 30 til 39 ára ætlar að segja Já, 48,8 prósent fólks á aldrinum 50 til 59 ára og 48,7 prósent fólks á aldrinum 60 til 69 ára. Standa þessir aldursflokkar nær í stað í svörum milli kannanna.

Reykjavík jákvæð, neikvæðum fjölgar verulega á Vesturlandi og Vestfjörðum

Þegar litið er til búsetu svarenda aukast já-in í Reykjavík þar sem 61,4 prósent að segja , sem er aukning frá fyrri könnun um 2,4 prósent.

54,6 prósent í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, ætla að segja , sem er lækkun frá fyrri könnun um 1,4 prósent.

Á landsbyggðinni ætlar meirihlutinn að segja Nei, 66,6 prósent á Vesturlandi og Vestfjörðum, 58,1 prósent á Norðurlandi, 53 prósent á Suðurlandi og Reykjanesi, og á Austurlandi ætla 68,2 prósent að segja Nei

Vesturland og Vestfirðir sveiflast verulega á við fyrri könnun þar sem 52,6 prósent ætluðu að segja Nei. Á Austurlandi sveiflast í hina áttina þar sem þeim sem ætla að svara Nei fækkar úr 76,1 í 68,2 prósent.

Engar breytingar frá fyrri könnun sé litið til menntunar

Einnig er að finna mun þegar litið er til menntunar. Meira en helmingur þeirra sem hafa lokið grunn- og framhaldsskólanámi ætlar að segja Nei, en 61,5 prósent fólks með háskólapróf ætlar að segja . Tölur eru nánast sömu og frá fyrri könnun.

Tekjulágir velja Nei - Tekjuháir Já

Þegar litið er til tekna ætla 50,3 prósent fólks með mánaðartekjur undir 800 þúsund krónum að segja Nei. Er það lækkun frá fyrri könnun um 3,2 prósent.

Meira en helmingur þeirra sem hafa laun hærri en 800 þúsund krónur á mánuði ætla að segja , 59,5 prósent þeirra sem hafa laun á milli 800 til 999 þúsund krónur, 54,5 prósent þeirra sem hafa laun á milli milljón og 1.399 þúsund krónur (lækkun um 2,9 prósent frá fyrri könnun) og 60,2 prósent þeirra sem hafa laun á milli 1.400 þúsund og tveimur milljónum á mánuði (hækkun um 2,1 prósent milli kannanna). 52,4 prósent fólks með yfir tvær milljónir króna í mánaðarlaun ætla að segja  (lækkun um 1,6 prósent frá fyrri könnun).

Nei svörum fjölgar verulega hjá stuðningsfólki Miðflokks og Framsóknar

Munurinn er töluverður þegar litið er til hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi kjósa til Alþingis í dag. Meirihluti kjósenda Pírata (89,3%), Samfylkingarinnar (94,7%), Sósíalistaflokksins (79,2%), Viðreisnar (95,8%) og Vinstri grænna (93,4%) ætla að segja Já. Aukning er í já-inu hjá kjósendum Pírata, Samfylkingarinnar, Sósíalista og Vinstri grænna frá fyrri könnun, meðan hlutfall kjósenda Viðreisnar stendur nær í stað. 

Sama á við um kjósendur Flokks fólksins þar sem meira en helmingur eða 53,3 prósent ætlar að segja , líkt og í fyrri könnun.

Stuðningsfólk Miðflokksins er afdráttarlaust í að segja Nei líkt og í fyrri könnun, 91 prósent, miðað 88,6 prósent í fyrri könnun. Sama á við um stuðningsfólk Framsóknarflokksins þar sem 76 prósent segja Nei, sem er hækkun frá fyrri könnun um 7,1 prósent.

Sama á við um stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins með 86,6 prósent sem er óveruleg hækkun frá fyrri könnun.

Könnunin fór fram dagana 22. - 29. júlí og voru svarendur 2.255 talsins, þar af tóku 1.865 afstöðu.

Hvenær fer þjóðaratkvæðagreiðslan fram?

Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst og eru kjörstaðir opnir frá kl. 9-22. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er hafin hjá sýslumönnum og einnig á skrifstofu hjá sumum sveitarfélögum. Hér má finna upplýsingar um utankjörfundarstaði. Hér má finna upplýsingar um kjörstaði erlendis.

Mynd

Hver má kjósa?

Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.

Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.

Erlendir ríkisborgarar hafa ekki kosningarrétt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi kjörskrár þann 22. júlí 2026. Fletta má upp hvort kjósandi er á kjörskrá og hvar hann á að kjósa hér.

Upplýsingavefur um þjóðaratkvæði

Landskjörstjórn hefur opnað upplýsingavefinn Þjóðaratkvæði þar sem kjósendur geta aflað sér upplýsinga.