Eyjan

Orðið á götunni: Fylgi Miðflokksins hrynur áfram – af skiljanlegum ástæðum

Mynd

Ný skoðanakönnun Maskínu fyrir Sýn sem byggir á svörum 963 svarenda – sem er reyndar á mörkunum þess að teljast marktækt – sýnir meðal annars að fylgi Miðflokksins heldur áfram að hrynja. Í janúar á þessu ári mældist flokkurinn með 22,2 prósenta fylgi en er nú kominn í 13,4 prósent og fer lækkandi með hverri könnun sem gerð er. Í janúar mældist Miðflokkurinn mun stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Nú hefur orðið alger viðsnúningur milli þessara hægri flokka þegar fylgi Sjálfstæðisflokksins ratar loks heim frá Miðflokki.

Orðið á götunni er að enginn þurfi að vera undrandi á því að fylgi Miðflokksins hrynji. Það er ekki bara öfgafullur og óaðlaðandi málflutningur flokksins sem veldur heldur einnig sú staðreynd að svo virðist sem aðrir flokkar geti ekki hugsað sér að vinna með Miðflokki í meirihlutasamstarfi þótt tækifæri gefist til þess. Ekki einu sinni Sjálfstæðisflokkurinn – og hver annar ætti þá að vilja samstarf við Miðflokkinn? Kjósendur átta sig á því að tilgangslaust er að ljá Miðflokki stuðning því hann mun hvergi komast til áhrifa og valda.

Þetta sýndi sig í vor eftir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem fylgi Miðflokks var víða ágætt. Þegar hafist var handa við myndun meirihluta komst Miðflokkurinn hvergi að nema með einn mann í Reykjanesbæ þar sem enginn annar flokkur fékkst til að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokki. Í öllum öðrum tilvikum var Miðflokkurinn sniðgenginn, þar á meðal í Reykjavík, en Sjálfstæðisflokkurinn hefði þar getað myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokki en valdi samstarf við aðra flokka. Sama gilti um Hafnarfjörð og fleiri af stærri sveitarfélögunum. Jafnvel Sjálfstæðisflokknum stendur stuggur af öfgahægristefnu Miðflokksins og vill ekki samstarf við hann. Það er því fullkomlega eðlilegt að kjósendur velji aðra kosti en Miðflokkinn og málflutning helstu þingmanna flokksins.

Ekki er marktækur munur á fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, um 25 prósent hjá hvorum sem skilaði 17 þingmönnum ef úrslit kosninga yrðu í samræmi við þessa skoðanakönnun. Miðflokkur mælist nú með 13,4 prósent og fengi níu þingmenn eins og Viðreisn sem mælist með 12,7 prósent fylgi og bætir lítillega við sig frá síðustu könnun. Framsókn tapar fylgi frá síðustu könnun og fengi nú 6,6 prósent og fjóra þingmenn, rétt eins og Flokkur fólksins sem fær nú 5,9 prósent fylgi en var með 4,1 prósent í júní.

Vinstri grænir vega salt á girðingunni og vantar örlítið til að ná 5 prósenta markinu og fengi þá þrjá þingmenn kjörna.

Orðið á götunni er að yrðu úrslit kosninga á þennan veg þyrftu núverandi ríkisstjórnarflokkar að bjóða annað hvort Framsókn sem fengi fjóra menn kjörna eða Vinstri grænum með 3 menn til meirihlutasamstarfs og gæti þannig haldið velli. Hinn kosturinn væri að Vinstri grænir gengju til samstarfs við stjórnarandstöðuflokkana þó nánast útilokað megi telja að þeir gætu hugsað sér meirihlutasamstarf við öfgahægrimennina í Miðflokki.

Merkilegasta vísbending þessarar könnunar er að Miðflokkurinn er á miklu undanhaldi og má muna sinn pólitíska fífil fegurri.

Hrun fylgis Miðflokksins ætti ekki að koma á óvart.