Mynd
Orðið á götunni: Fylgi Miðflokksins hrynur áfram – af skiljanlegum ástæðum
Ný skoðanakönnun Maskínu fyrir Sýn sem byggir á svörum 963 svarenda – sem er reyndar á mörkunum þess að teljast marktækt – sýnir meðal annars að fylgi Miðflokksins heldur áfram að hrynja. Í janúar á þessu ári mældist flokkurinn með 22,2 prósenta fylgi en er nú kominn í 13,4 prósent og fer lækkandi með hverri könnun sem gerð er.