Brúin yfir Mjóafjörð kemur úr vöruskrá BYKO. Byggingavöruverslanir koma í auknum mæli að borðinu á hönnunarstigi verkefna og starfsemin hefur á margan hátt breyst mikið á undanförnum árum. Fjórar milljónir viðskiptavina koma inn í búðir BYKO á hverju ári en undanfarin ár hefur vöxtur fyrirtækisins aðallega verið fagaðilamegin. Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Hér má hlusta á brot úr þættinum:
Ef þú horfir til baka þessi, þú ert búinn að vera, þú ert búinn að stýra BYKO í 12 ár, þú ert búinn að vera lengur hjá BYKO, er það ekki?
„Jú, ég hef bara alist upp hjá BYKO. Nú er tíminn svo fljótur að líða, ég var í háskólanámi og fékk sumarstarf. Og síðan kláraði ég lokaverkefni mitt fyrir BYKO og þá bauðst mér starf í framhaldinu. En ég hef verið innan samsteypunnar, Norvik. Ég var fyrst í innkaupum og birgðastýringu, síðan tek ég við vöruhúsunum og set svo upp vöruhótelið Bakki sem var opnað 2008. Og síðan var ég í framkvæmdastjórn samhliða, framkvæmdastjóri, og síðan tek ég við forstjórahlutverkinu 2014.“
Á þessum tíma hefur starfsemi BYKO, nú er ég ekki að tala um Norvik, hefur starfsemi BYKO breyst mikið á þessum tíma eða er þetta svona tiltölulega stöðugur geiri?
„Ja, það hefur auðvitað mjög margt breyst. Það hefur bæði breyst bara vöruframboðið okkar, kröfurnar. Við fylgjum auðvitað og viljum vera alltaf skrefinu á undan í vöruþróun og uppfylla þarfir og væntingar okkar viðskiptavina. Það hefur mikil þróun verið á því sviði. Við höfum verið að vaxa. Síðan erum við auðvitað háð þessum ytri skilyrðum og eins og kom inn áðan, við förum niður þegar markaðurinn fer niður og svo förum við upp aftur. Jú, jú, það hefur heilmargt breyst og þá sérstaklega svona viðskiptavinamegin, það sem snýr að byggingaraðferðum, og við erum komin inn á svo breitt svið markaðarins. Við erum mjög mikið í svona sem við köllum sértækri sölu þar sem við komum að hönnun, komum að hönnunarferlinu og erum með mjög öflugt starfsfólk, sem er tæknimenntað, sem kemur að hönnunarstiginu. Og ég segi það nú oft að mér finnst það svona endurspegla vel hvað við erum í stakk búin í að gera að brúin yfir Mjóafjörð, hún kemur úr vöruskrá BYKO. Sem dæmi um hversu sveigjanlegt og á hvað breiðu sviði við störfum. Við erum mjög stolt af verkum eins og Bláa lóninu, komum að því öllu saman, Skógarböðin og öðrum svona flóknum, oft verkfræðilegum verkefnum.“
Já, þið eruð ekki bara einhver búð sem er með svo og svo mörg vörunúmer og viðskiptavinurinn bara kemur og tekur eitthvað úr hillunni?
„Nei, alls ekki og það er svo margt sem svona má segja að gerist kannski ekki í augsýn hins almenna viðskiptavinar okkar, þar sem við erum að vinna að þessum sértæku verkefnum og við erum að koma að ansi mörgum verkefnum sem eru bæði innviðaverkefni, samgönguverkefni, eða íbúðarverkefni, hvort sem það er í gluggalausnum, klæðningalausnum eða öðrum svona flóknari verkefnum. Eins og til að mynda Skógarböðin eða Bláa lónið, tennishöllin, það var svona verkfræðilega flókið. Þú ert með hurð inni í vatni, á bólakafi í vatni og hún þarf að geta opnast, hún þarf að geta staðið líftíma sinn og Þannig að já, það er mjög skemmtilegt svið og við erum alltaf að vaxa á því sviði.“
Nú er ábyggilega stór hluti þjóðarinnar er viðskiptavinir hjá ykkur, hjá byggingavöruverslunum. Maður kemur, maður þarf að kaupa, ja, maður þarf að bera á pallinn eða eitthvað og þá fer maður í byggingavöruverslun. En við, þessir svona almennu neytendur, við erum mikill minnihluti af ykkar veltu, er það ekki?
„Ég veit ekki hvort ég vil nota orðið minnihluti. Eins og ég kom inn á áðan, við höfum vaxið hratt og örugglega inn á fagaðilasviðið og það er orðinn stærri hluti af okkar veltu þeim megin frá. Við erum að fá inn í búðirnar okkar fjórar milljónir viðskiptavina á hverju einasta ári, þannig að það er stór og mikilvægur hópur sem okkur þykir mjög vænt um.“
En vöxturinn hefur verið meira fagaðilamegin?
„Hann hefur verið það hjá okkur undanfarin ár. Við höfum verið að vaxa þétt þar, við höfum líka verið að vaxa einstaklingsmegin. En það má kannski segja að það sem drífur vöxtinn áfram núna er einstaklingsmegin og það er bara helgast af stöðunni á byggingavörumarkaðnum og það má kannski líka segja að það sé mjög jákvætt að við stöndum sem samfélag bara vel, heimilin standa vel og bankarnir standa vel og það er allt annað andrúmsloft núna heldur en við höfum séð áður. Það er margt jákvætt í kortunum. Við þurfum bara að spila rétt úr þessu?“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.