Eyjan

Nína Richter skrifar: Að bakast í Brüssel

Mynd

 

Mynd

Það eru 40 gráður fyrir utan gluggann en mælirinn inni í herberginu sýnir 22.

Niðri í lobbíinu keppast starfsmenn við að rétta hótelgestum ís, sem er orðinn lítið annað en heitur rjómi í klístruðu bréfi þegar hann mætir vörum manns. Þetta er allt á pari við það sem hollensk vinkona mín sagði mér um Belgíu. Lélegir vegir og ljót hús. Mér skilst að það Belgar séu fyrir Hollendingum það sem Sviar eru fyrir Finnum.

Að vísu eru þessar evrópustofnanir hér í Brüssel ekki ljótar, en ekki beinlínis fallegar heldur. Tignarlegar, stórgerðar og óraunverulegar. Minna mig á tölvugert drónaskot úr lokaþætti á HBO. Svo fyllist maður lotningu yfir fallega matreiddum hugsjónum og harðri bjúrókrasíu. A Lannister always pays his debts.

Það eru byggingarkranar úti um alla borg, sem er undirlögð steypuryki og viðhaldsframkvæmdum. Eins og borgin hafi átt að fara í makeover á einum degi en svo hafi bara gleymst að fá einhver leyfi.

Eftir að hafa skilað lokaritgerð um misræmi í framkvæmd Sameinuðu þjóðanna er ekkert óviðeigandi að fara í ógeðslega nördalega tveggja manna útskriftarferð til Belgíu. Konan hefur ástriðu fyrir alþjóðastofnunum. Reyndar er þessi ferð vinnuferð hjá betri helmingnum sem er undirleikari á risastóru kóramóti hinsegin kóra.

Ég er holdgerving vonbrigða á viðburðum hérna úti, þegar ég birtist við hlið myndarlega og vel klædda eiginmannsins sem er þannig sorglega gagnkynhneigður eftir allt saman. Við höfum gert samning um að koma aftur sem hommapar í næsta lífi, ef við höfum eitthvert val um það. Partíin eru einfaldlega skemmtilegri.

Skokkarar þjóta fram hjá mér i hitanum, á meðan ég drekk Aquarius og reyni að passa söltin svo að ég fái ekki hitaslag. Ég upplifi nýja tegund af minnimáttarkennd sem ég vissi ekki að væri til. En það magnaðasta við þessa borg eru mennirnir i síðu jakkafötunum.

Þeir birtast upp úr þurru fyrir utan stofnanirnar, eins og aukapersónur i tölvuleik. Óaðfinnanlega klæddir i dökkbláum síðum jakkafötum, pressuðum skyrtum og pússuðum skóm. Þeir svitna ekki, enda er ófagmannlegt að svitna og þeir eru að fara á fund.