fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Eyjan

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk

Eyjan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Senn líður að því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur eigi hálfs árs afmæli. En hún tók við völdum 21. desember síðastliðinn, eftir að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri- grænna og Framsóknarflokks lagði upp laupana. Kosningarnar sem fram fóru í kjölfar stjórnarslitanna voru um margt sögulegar.

Þau tíðindi urðu að þeim flokkum sem stóðu að síðustu ríkisstjórn var hafnað. Vinstri-grænir þurrkuðust út af þingi, Framsóknarflokkur galt afhroð og Sjálfstæðisflokkurinn hlaut lökustu kosningu sem um getur frá stofnun hans.

Að auki náðu Sósíalistar sér ekki á strik þrátt fyrir eftirgangsmuni og Píratar hurfu af sjónarsviðinu sem landsmálapólitískur flokkur.

Ljóst varð þá strax að umskipti yrðu á hinu pólitíska sviði. Það var og. Mynduð var ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins og nýr tónn var sleginn.

Þeir flokkar sem áður sátu við stjórnvölinn hafa síðan sleitulaust leitað að erindi sínu en ekki fundið. Jafnvel forystuskipti virðast ekki skila tilætluðum árangri.

Ríkisstjórnin nýtur mikils stuðnings

Af fylgiskönnunum síðan má ráða að hin tæplega hálfs árs gamla ríkisstjórn nýtur mikils stuðnings og trausts meðal kjósenda og nægir í því sambandi að vísa til nýjasta Þjóðarpúls Gallúps. Þar mælist stuðningur landsmanna 67 prósent. Það er ágætt vegarnesti fyrir hina nýju stjórn sem að mörgu leyti hefur glímt við flókin úrlausnarefni og viðkvæm.

En verkefnalistinn er líka ærinn og að mörgu að hyggja og ekki verður annað sagt en að rösklega hafi verið gengið til verks.

Búið er að ráða málefnum IL-sjóðs til lykta, verkefni sem fyrri stjórn entist ekki aldur til þó að tíminn sem tekinn var til þess væri drjúgur.

Á sömu lund er búið að selja Íslandsbanka að fullu í hendur almennings og verður ekki betur séð en það þjóðþrifaverk hafi tekist bráðvel. Til þess naut fyrri stjórn ekki trausts.

Lagt hefur verið fram frumvarp um hækkun leigu fyrir afnot af fiskiauðlind í eigu þjóðarinnar og ekki útlit fyrir annað en að landsmenn líti svo á að sanngirnismál sé á ferðinni og að um það verk sé víðtækur stuðningur. Fáeinar mjóróma raddir útgerðarmanna og fjölmiðla í þeirra eigu breyta því ekki.

Hin pólitískt örkumlaða stjórnarandstaða mun heldur ekki breyta neinu um það umfram að lengja starf Alþingis inn í sumarið, sem gerir ekkert til.

Upplýsa þarf betur um hina raunverulegu stöðu

Á valdatíma ríkisstjórnarinnar hefur hún staðið andspænis versnandi þróun í heimsmálum með stríðsógnum og ófriði og væringum í alþjóðaviðskiptum. Það kallar á aukna athygli stjórnvalda að tryggja hagsmuni Íslands í þeirri ólgu allri. Jafnframt kallar það á að Evrópa þétti raðirnar og Ísland hlýtur að taka aukinn þátt í evrópsku samstarfi hvort sem varðar öryggis- og varnarmál eða viðskipti milli ríkja. Ekki er ósennilegt að þátttaka Íslands í Evrópusamstarfi verði fyrr til umræðu en stundatafla ríkisstjórnarinnar gefur til kynna.

Málefni innflytjenda hafa líka tekið til sín orku stjórnvalda, en umræða um það atriði er skautuð og erfitt að festa fingur á hvert vandamálið er í raun. Samkomur í miðbæ Reykjavíkur á laugardag sýna glöggt að upplýsa þarf betur um hina raunverulegu stöðu. Í Kastljósi í gærkvöld kom til dæmis fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd voru 4.168 árið 2023 en 1.944 árið 2024 og það 438 það sem af er ári. Það er því ljóst, ef marka má af þessu, að færri sækja hingað í skjól. Menn geta svo haft sína skoðun á því hvort það sé góð þróun eða slæm.

Meðan á öllu þessu gengur birtast svo nýjar tölur um hagvöxt á fyrstu þremur mánuðum ársins. Samkvæmt mælingum Hagstofunnar reyndist hann vera jákvæður um 2,6 prósent. Það telst vera sigur fyrir hin nýju stjórnvöld, ekki síst þegar litið er til sama tímabils í fyrra, árið 2024, þegar hagvöxtur mældist neikvæður um 2,0 prósent.

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Dauðinn og fíknin

Óttar Guðmundsson skrifar: Dauðinn og fíknin
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“